
Sjórinn gekk yfir bryggjuna á Arnarstapa. Ljósm. af.
Há sjávarstaða í höfnum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á flóði í morgun höfðu menn gert ráð fyrir að gefið gæti yfir í höfnum í kjölfar lægðarinnar sem kom upp að landinu. Bátar voru því vel bundnir og sumsstaðar höfðu þeir verið teknir upp. Í höfninni á Arnarstapa voru þannig engir bátar, en þar gekk sjór upp á bryggjuna og færði til karasamstæðu. Í Akraneshöfn var sömuleiðis há sjávarstaða, en ekkert tjón enda stormurinn genginn niður þegar háflóð var. Við Ólafsvík gekk sjór yfir þjóðveginn. Þar varð í morgun óhapp þegar bíll, sem ekið var eftir veginum, skrikaði til í vatni á veginum og lenti utan í grjótgarði. Bíllinn er skemmdur en ökumann sakaði ekki. Meðfylgjandi myndir voru teknar nú í morgun á Arnarstapa og Akranesi.\r\n\r\n[gallery columns=\"4\" size=\"large\" ids=\"50067,50068,50069,50070\"]",
"innerBlocks": []
}