Sýni tekið. Ljósm. úr safni/ kgk.

Um fimm prósent þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær voru 1.378 greindir á landinu með kórónuveiruna. Af þeim voru rúmlega 300 smit greind á landamærunum sem er nýtt met. Yfir sautján þúsund manns eru nú í sóttkví eða einangrun eða nærri fimm prósent þjóðarinnar. Um tíu prósent þjóðarinnar hefur nú greinst með veiruna. Fréttavefur Ríkisútvarpsins hefur það eftir fulltrúa Almannavarna að flest smit á landamærunum séu í röðum fólks sem hefur verið að koma frá Tenerife, Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku og Póllandi, í þessari röð.\r\n\r\nTalið er að um 90% smitanna séu með Omíkron afbrigðið en daglega eru að greinast um 100 til 150 með Delta afbrigðið sem er talið skæðara og er líklegra til að leggjast á lungun.",
  "innerBlocks": []
}
Um fimm prósent þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun - Skessuhorn