Fréttir

true

Fækkar um einn í einangrun

Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi yfir fólk í einangrun og sóttkví vegna Covid-19, þá fækkar um einn í einangrun milli daga. Þeir eru nú 179 á Vesturlandi öllu, en 153 eru í sóttkví; 21 fleiri en í gær. Á Akranesi eru nú 62 í einangrun og 71 í sóttkví; í Borgarnesi eru 55 í…Lesa meira

true

Nýr markaðsstjóri til starfa á Skessuhorni

Nú um áramótin hóf Díana Ósk Heiðarsdóttir starf sem markaðsstjóri hjá Skessuhorni. Tekur hún við starfinu af Hrafnhildi Harðardóttur sem gegnt hefur því undanfarin fimm ár. Díana Ósk hefur lengst af sínum starfstíma verið verslunarstjóri í lyfsölu og matvöruverslunum, m.a. í Búðardal og á Akranesi. Undanfarin tvö ár hefur hún verið í námi til löggildingar…Lesa meira

true

Smit í starfsmannahópi Brákarhlíðar

Upp er komið kórónuveirusmit í starfsmannahópi Hjúkrunar- og dvalarheimilis Brákarhlíðar í Borgarnesi. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu heimilisins. Af öryggisástæðum hefur verið lokað á allar heimsóknir að sinni meðan farið verður yfir málin og skimanir gerðar meðal heimilisfólks og starfsmanna. Frekari upplýsingar verða sendar út eftir því sem málin skýrast. Aðeins verða veittar undanþágur í…Lesa meira

true

Yfir eitt þúsund greindust innanlands í gær

Alls greindust 1.074 með kórónuveiruna innanlands í gær. 459 af þeim sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu, eða 43%. 615 voru utan sóttkvíar eða 57%. Þetta kemur fram á síðunni covid.is en nú eru 9.125 í einangrun vegna Covid-19 á landinu samanborið við 8.641 í gær. 7.525 eru nú í sóttkví en voru…Lesa meira

true

Veðrið verður býsna vont þar sem vindur stendur af fjöllum

Frá því í kvöld og til morguns er gul viðvörun fyrir allt sunnan,- og suðvestanvert landið og miðhálendið. Meðfylgjandi mynd sýnir vindhraðaspá Veðurstofunnar klukkan 3 í nótt. Af litunum má sjá að búast má við mjög hvössu veðri þar sem vindur stendur af fjöllum, meðal annars í uppsveitum Borgarfjarðar, á Snæfellsnesi og víðar. Við Faxaflóa…Lesa meira

true

Landað í Ólafsvík fyrir storminn stóra

Sjómennirnir á beitningarvélarbátnum Huldu GK 17 voru í óða önn að landa afla dagsins, 11 tonnum í gærkvöldi þegar meðfylgjandi mynd var tekin. Emanúel Magnússon skipstjóri segir að veðurspá sé ekki góð fyrir næstu daga. Bátar frá Snæfellsnesi hafa verið að komast á fullt aftur eftir áramót og er afli þeirra sem róið hafa mjög…Lesa meira

true

VÍS bikarinn færður til mars

Stjórn KKÍ kom saman á fjarfundi í gær og tók þá ákvörðun að færa VÍS bikarinn í körfuknattleik til 16.-20. mars að tillögu mótanefndar. Þetta þýðir að fyrirhuguð VÍS bikarvika verður ekki leikin í næstu viku. Þetta er gert í ljósi fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun, en sú smitbylgja sem nú gengur yfir hefur…Lesa meira

true

Auglýst eftir fólki í bakvarðasveit Jaðars

Í ljósi stöðunnar í samfélaginu telja stjórnendur Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars í Snæfellsbæ skynsamlegt að koma aftur á fót bakvarðasveit fyrir heimilið ef upp koma forföll hjá því öfluga starfsfólki sem þar sinnir mikilvægum umönnunarstörfum allan sólarhringinn. Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar. Þar segir jafnframt að: „Eins og staðan er núna er Jaðar vel…Lesa meira

true

Byggðakvóta úthlutað

Á fiskveiðiárinu 2021/2022 er almennum byggðakvóta úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum. Þar af eru sex byggðarlög á Vesturlandi sem fá úthlutað byggðakvóta, alls 282 þorskígildistonnum. Þrjú byggðarlög í landinu fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun á fiskveiðiárinu 2021/2022 og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun. Hér á Vesturlandi er mestu úthlutað til Grundarfjarðar þangað sem…Lesa meira

true

Skóla aflýst og viðbúnaður vegna veðurs

Leiðinda veður er nú á á Snæfellsnesi og gengur á með stormhviðum. Var skólahaldi aflýst á norðanverðu Snæfellsnesi vegna veðurs á milli byggðarkjarna í morgun. Að sögn Hilmars Más Arasonar skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar verður ákvörðun um skólahald á morgun tekin seinni partinn í dag eða í fyrramálið, en afar slæm spá er í nótt og…Lesa meira