
Díana Ósk Heiðarsdóttir til vinstri og Hrafnhildur Harðardóttir.
Nýr markaðsstjóri til starfa á Skessuhorni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú um áramótin hóf Díana Ósk Heiðarsdóttir starf sem markaðsstjóri hjá Skessuhorni. Tekur hún við starfinu af Hrafnhildi Harðardóttur sem gegnt hefur því undanfarin fimm ár. Díana Ósk hefur lengst af sínum starfstíma verið verslunarstjóri í lyfsölu og matvöruverslunum, m.a. í Búðardal og á Akranesi. Undanfarin tvö ár hefur hún verið í námi til löggildingar sem fasteignasali. Skessuhorn býður hana velkomna til starfa, þakkar Hrafnhildi góð störf og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi hjá Sparnaði í Garðabæ.",
"innerBlocks": []
}