Veðrið verður býsna vont þar sem vindur stendur af fjöllum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Frá því í kvöld og til morguns er gul viðvörun fyrir allt sunnan,- og suðvestanvert landið og miðhálendið. Meðfylgjandi mynd sýnir vindhraðaspá Veðurstofunnar klukkan 3 í nótt. Af litunum má sjá að búast má við mjög hvössu veðri þar sem vindur stendur af fjöllum, meðal annars í uppsveitum Borgarfjarðar, á Snæfellsnesi og víðar. Við Faxaflóa er spáð suðaustan 20-25 m/sek og svipað  við Breiðafjörð þar sem hámarkið fer þó upp í 28 m/sek. Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að tryggja lausamuni og vera ekki á ferð að nauðsynjalausu, einkum á farartækjum sem taka á sig mikinn vind.",
  "innerBlocks": []
}
Veðrið verður býsna vont þar sem vindur stendur af fjöllum - Skessuhorn