Auglýst eftir fólki í bakvarðasveit Jaðars

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í ljósi stöðunnar í samfélaginu telja stjórnendur Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Jaðars í Snæfellsbæ skynsamlegt að koma aftur á fót bakvarðasveit fyrir heimilið ef upp koma forföll hjá því öfluga starfsfólki sem þar sinnir mikilvægum umönnunarstörfum allan sólarhringinn. Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar.\r\n\r\nÞar segir jafnframt að: „Eins og staðan er núna er Jaðar vel settur af starfsfólki en það má lítið út af bera og því gott að eiga bakvarðasveit upp á að hlaupa. Það eru fjölmörg verk sem þarf að sinna og fari svo að mikið brottfall verði í hópi starfsmanna gæti orðið nauðsynlegt að fá aðstoð við að manna störf við aðhlynningu, í eldhúsi, í þrifum á heimilinu o.fl. Við leitum að fólki sem gæti veitt okkur aðstoð ef slíkar aðstæður koma upp. Hver sá sem telur sig geta lagt sitt á vogarskálarnar má endilega skrá sig í bakvarðasveitina með því að senda nafn og símanúmer á netfangið jadar@snb.is.“",
  "innerBlocks": []
}
Auglýst eftir fólki í bakvarðasveit Jaðars - Skessuhorn