
Mest fær Grundarfjarðarbær í sinn hlut af byggðakjörnum á Vesturlandi, eða helming þess sem úthlutað er til hafna í landshlutanum. Ljósm. mm.
Byggðakvóta úthlutað
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fiskveiðiárinu 2021/2022 er almennum byggðakvóta úthlutað til 50 byggðarlaga í 29 sveitarfélögum. Þar af eru sex byggðarlög á Vesturlandi sem fá úthlutað byggðakvóta, alls 282 þorskígildistonnum. Þrjú byggðarlög í landinu fá 300 þorskígildistonna hámarksúthlutun á fiskveiðiárinu 2021/2022 og sextán byggðarlög fá 15 þorskígildistonna lágmarksúthlutun. Hér á Vesturlandi er mestu úthlutað til Grundarfjarðar þangað sem 140 þorskígildistonn fara. Stykkishólmi er úthlutað 70 tonnum og Ólafsvík 27 tonnum. Fimmtán tonnum er úthlutað til hafna á Hellissandi, í Rifi og Arnarstapa.\r\n\r\nÚthlutun byggðakvóta byggir á þeim reglum sem fram koma í reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022, og upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2011/2012 til fiskveiðiársins 2021/2022. Á heildina litið verða óverulegar breytingar á því magni í þorskígildistonnum sem einstök byggðarlög fá úthlutað. Þó eru það alls átta byggðarlög þar sem úthlutun dregst saman milli ára sem skýrist einkum af samdrætti í heildarúthlutun milli ára. Samdráttur í heildarúthlutun frá fiskveiðiárinu 2020/2021 nemur 179 þorskígildistonnum.\r\n\r\n<em><a href=\"https://www.stjornarradid.is/default.aspx?pageid=e5cf150d-33a7-11e6-80c7-005056bc217f&newsid=84df2e47-6e1a-11ec-8143-005056bc8c60\">Sjá nánar í frétt frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.</a></em>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}