Skóla aflýst og viðbúnaður vegna veðurs

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Leiðinda veður er nú á á Snæfellsnesi og gengur á með stormhviðum. Var skólahaldi aflýst á norðanverðu Snæfellsnesi vegna veðurs á milli byggðarkjarna í morgun. Að sögn Hilmars Más Arasonar skólastjóra Grunnskóla Snæfellsbæjar verður ákvörðun um skólahald á morgun tekin seinni partinn í dag eða í fyrramálið, en afar slæm spá er í nótt og fyrramálið.\r\n\r\nHafsteinn Ingi Viðarsson, formaður björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ, segir að allt væri með kyrrum kjörum þessa stundina og engin útköll hafa borist sveitinni það sem af er degi. Björgunarsveitin er þó í viðbragðsstöðu. Sjómenn hafa síðustu daga einbeitt sér við að ganga tryggilega frá bátum sínum í höfnum. Meðfylgjandi mynd tók Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns við höfnina í Ólafsvík í morgun.",
  "innerBlocks": []
}
Skóla aflýst og viðbúnaður vegna veðurs - Skessuhorn