{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sjómennirnir á beitningarvélarbátnum Huldu GK 17 voru í óða önn að landa afla dagsins, 11 tonnum í gærkvöldi þegar meðfylgjandi mynd var tekin. Emanúel Magnússon skipstjóri segir að veðurspá sé ekki góð fyrir næstu daga. Bátar frá Snæfellsnesi hafa verið að komast á fullt aftur eftir áramót og er afli þeirra sem róið hafa mjög góður í öll veiðarfæri. En einhverjir bátar eru ekki byrjaðir að róa út af Covid-19 sem hefur herjað víða og meðal annars í Snæfellsbæ.",
"innerBlocks": []
}
Landað í Ólafsvík fyrir storminn stóra - Skessuhorn