Yfir eitt þúsund greindust innanlands í gær

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alls greindust 1.074 með kórónuveiruna innanlands í gær. 459 af þeim sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu, eða 43%. 615 voru utan sóttkvíar eða 57%. Þetta kemur fram á síðunni covid.is en nú eru 9.125 í einangrun vegna Covid-19 á landinu samanborið við 8.641 í gær. 7.525 eru nú í sóttkví en voru 6.940 í gær og þá eru 584 nú í skimunarsóttkví.\r\n\r\nÁ vef Landspítalans segir að þrjátíu sjúklingar liggi nú inni á sjúkrahúsi vegna Covid-19 en voru 28 í gær. Átta manns eru á gjörgæslu sem er sami fjöldi og í gær og fimm eru í öndunarvél. 164 greindust á landamærunum í gær, 161 virkt smit í fyrri landamæraskimun og þrjú í þeirri seinni.\r\n\r\nAlls hafa 33.901 greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 39 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.",
  "innerBlocks": []
}
Yfir eitt þúsund greindust innanlands í gær - Skessuhorn