Fréttir

true

Góðir gestir í heimsókn í Grundaskóla

Í gær komu tveir „gamlir“ nemendur Grundaskóla á Akranesi í heimsókn í skólann og ræddu við nemendur og kennara. Hér voru á ferð Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson en þeir eru báðir atvinnuknattspyrnumenn hjá FC Köbenhavn í Danmörku. Þeir félagar héldu skemmtilegan fyrirlestur á sal, ræddu við nemendur um líf sitt sem atvinnumenn…Lesa meira

true

Skagamenn með tap á móti Hamri

Hamar og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Hveragerði. ÍA byrjaði betur í leiknum og komst í 2:8 en þegar leið á fyrsta leikhluta voru heimamenn komnir með tíu stiga forystu, 26:16, og við lok hans var staðan svipuð, 32:24 fyrir Hamar. Um miðjan annan leikhluta…Lesa meira

true

Kaupfélagið bauð til veislu

Það var margt um manninn í Kaupfélagi Borgfirðinga við Egilsholt i Borgarnesi í gærkvöldi, en þá var boðið upp á jólakvöld. Inni voru lifandi tónar þar sem Þóra Sif Svansdóttir söng við undirleik Halldórs Hólm. Starfsfólk í versluninni bauð upp á ilmandi vöfflur og heitt súkkulaði og ýmis jólatilboð voru um búðina. Slökkvilið Borgarbyggðar kom…Lesa meira

true

Báðir ökumenn gengu út úr sínum bílum

Lögreglunni á Vesturlandi barst útkall vegna bílslyss klukkan 15:43 í gær. Þá höfðu lent saman fólksbíll og vörubifreið á Akrafjallsvegi neðan við bæinn Vestri-Reyni. Fjölmennt lið björgunarfólks var sent á vettvang en talið var í fyrstu að um alvarlegt slys væri að ræða. Betur fór þó en á horfðist. Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns…Lesa meira

true

Bókakynning í Snorrastofu

Snorrastofa í Reykholti býður upp á upplestur og umræður um nýútkomnar bækur í bókhlöðu stofnunarinnar miðvikudagskvöldið 14. desember kl. 20.00. Guðfinna Ragnarsdóttir mun kynna bók sína „Á vori lífsins. Minningar“. Guðfinna lýsir æskuárum sínum og ungdómsárum í menntaskóla og bregður upp myndum af mannlífi á Íslandi upp úr miðri síðustu öld. Guðni Ágústsson og Guðjón…Lesa meira

true

Jólagleði á Hvanneyri sunnudaginn 11. desember

Það verður notaleg jólastemning á Hvanneyri sunnudaginn 11. desember en þá fer fram viðburðurinn „Jólagleði á Hvanneyri“. Að sögn Álfheiðar Sverrisdóttur, formanns Íbúasamtaka Hvanneyrar og nágrennis, verður gamla Hvanneyrartorfan í hátíðarbúningi og ýmislegt um að vera fyrir alla aldurshópa. „Við stefnum á að færa gestum okkar jólagleði í hjartað og notalegheit í allri jólaösinni. Í…Lesa meira

true

Piparkökubakstur foreldrafélagsins

Foreldrafélag Grunnskóla Grundarfjarðar stóð fyrir piparkökubakstri í skólanum síðasta mánudagskvöld. Þá mættu foreldrar og börn til að baka og skreyta gómsætar piparkökur og láta piparkökuilminn fylla sig jólaanda. Einbeitingin skein úr andlitum barnanna er þau skreyttu hverja piparkökuna á fætur annarri þó að ein og ein hafi ratað á milli tanna einhverra. Sjöundi bekkur sá…Lesa meira

true

Umferðaróhapp á Akrafjallsvegi

Árekstur varð á Akrafjallsvegi neðan við bæinn Vestra-Reyni um klukkan 15:45 í dag. Fjölmennt lið björgunarfólks er á vettvangi og meðal annars talið að beita þurfi klippum slökkviliðsins á bíl. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir að svo stöddu. Vegurinn er nú lokaður á meðan á aðgerðum stendur og umferð er beint um Innnesveg.Lesa meira