Fréttir

true

Árgangamót ÍA í Akraneshöllinni

Árgangamót ÍA í knattspyrnu verður á morgun í Akraneshöllinni eftir þriggja ára hlé en mótið hefur ekki verið haldið síðan 2019 vegna faraldursins. Húsið opnar klukkan 12.30 og hefst keppni klukkan 13. Þeir sem taka þátt er skipt í tvo aldurshópa, karlar og konur 30 ára og eldri keppa saman og síðan 40 ára og…Lesa meira

true

Skallagrímur með þriðja tapið í röð

Skallagrímur tók á móti liði Selfoss í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Jafnt var nánast á öllum tölum í fyrsta leikhluta og munurinn aldrei meiri en fjögur stig milli liðanna, staðan 31:32 gestunum í vil. Selfoss hóf leik af miklum krafti í öðrum leikhluta og…Lesa meira

true

Háleynilegur jólasveinaskiptimarkaður í Stykkishólmi – börn stranglega bönnuð

Á mánudaginn 14. nóvember, heldur Amtsbókasafnið í Stykkishólmi skiptimarkað fyrir jólasveina klukkan 20-21:30. Jólasveinar og aðstoðarmenn þeirra geta á markaðinum skipts á skógjöfum. Koma má með dót sem ekki er lengur notað á markaðinn en bókasafnið býr enn að góðum lager frá sama viðburði í fyrra. Öll eru velkomin en ekki þarf sérstaklega að koma…Lesa meira

true

Gert ráð fyrir að bæjarsjóður skili áfram jákvæðri niðurstöðu

Fasteignaskattur óbreyttur sem þýðir hækkun gjalda Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar var með til fyrri umræðu fjárhagsáætlun næsta árs og þriggja ára áætlun vegna áranna 2024 – 2026 á fundi sínum á þriðjudaginn. Á fundinum gerði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri grein fyrir helstu hagstærðum og áhersluþáttum í rekstri bæjarfélagsins. Fór hann vítt yfir sviðið hvað snertir t.d. fjárfestingar,…Lesa meira

true

Vel hefur fiskast þegar gefur

Veðrið upp á síðkastið hefur ekki verið hagstætt fyrir smærri báta sem gera út frá höfnum Snæfellsbæjar. Þegar hins vegar hefur lygnt hafa aflabrögð verið mjög góð. Línubáturinn Tryggvi Eðvarðs SH frá Ólafsvík hefur hins vegar ekki slegið slöku við að undanförnu og þar er róið stíft, en á bátnum eru tvær áhafnir sem róa…Lesa meira

true

Bjarki leikur í dag á lokaúrtökumóti

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi, sem nú spilar með GKG, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson GKG hefja í dag leik á lokaúrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina, sem er sterkasta atvinnumannamótaröðin í Evrópu. Þeir Bjarki og Guðmundur Ágúst voru báðir sáttir með frammistöðuna á 2. stigi úrtökumótanna fyrir DP Evrópumótaröðina. „Slátturinn var mjög stöðugur og góður og vinnan…Lesa meira

true

Allt að sjöfaldur munur á rekstrarkostnaði grunnskóla deilt á barn

Sambandi íslenskra sveitarfélaga hefur gefið út yfirlit yfir rekstrarkostnað á hvern grunnskólanemanda eftir stærð skóla árið 2021. Um er að ræða beinan rekstrarkostnað á almenna grunnskóla sveitarfélaga. Sérskólar eru þar ekki meðtaldir og miðlægur kostnaður t.d. vegna skólaskrifstofa er heldur ekki talinn með. „Að gefnu tilefni er bent á að margvíslegar ástæður geta orsakað mun…Lesa meira

true

Súpufundur með atvinnurekendum

Þriðjudaginn 15. nóvember klukkan 11:00 hefur atvinnu,- markaðs- og menningarnefnd Borgarbyggðar boðað til súpufundar fyrir atvinnurekendur í sveitarfélaginu. Fundurinn verður í Hjálmakletti. Tilgangur hans er að auka samtal milli atvinnulífs og stjórnsýslunnar. Dagskrá: Uppbyggingarsjóður Vesturlands – Páll Snævar Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV Kynning á nýju deiliskipulagi atvinnuhúsalóða við Vallarás – Verkís Rammasamningar – almennar upplýsingar –…Lesa meira

true

Verslun stendur í stað á milli ára

Heildar greiðslukortavelta í októbermánuði nam tæpum 104 milljörðum króna og jókst um 10% á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Þetta kemur fram í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar. Greiðslukortavelta innlendra korta í verslun innanlands í október stóð nánast í stað á milli ára miðað við breytilegt verðlag. Velta jókst þó á milli ára í stórmörkuðum og…Lesa meira

true

Blóði safnað á þriðjudaginn

Blóðbankabíllinn verður á bílastæðinu við Stillholt 16-18 á Akranesi þriðjudaginn 15. nóvember frá kl. 10:00 – 17:00. Blóðbankinn hvetur alla sem mega gefa blóð til að mæta.Lesa meira