
Bjarki og Guðmundur Ágúst. Ljósm. kylfingur.is
Bjarki leikur í dag á lokaúrtökumóti
Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi, sem nú spilar með GKG, og Guðmundur Ágúst Kristjánsson GKG hefja í dag leik á lokaúrtökumótinu fyrir DP Evrópumótaröðina, sem er sterkasta atvinnumannamótaröðin í Evrópu. Þeir Bjarki og Guðmundur Ágúst voru báðir sáttir með frammistöðuna á 2. stigi úrtökumótanna fyrir DP Evrópumótaröðina. „Slátturinn var mjög stöðugur og góður og vinnan sem við Arnar Már erum búnir að leggja inn þar er að skila sér. Ég hinsvegar púttaði ekki vel (á 2. stiginu). Það verður mikilvægt að vera heitur á pútternum í lokamótinu,“ sagði Bjarki í stuttu spjalli við kylfing.is eftir keppnina um síðustu helgi.