Fréttir

true

Veiran BPIV3 greinist í fyrsta sinn hér á landi

Matvælastofnun greindi í dag frá því að nýverið hafi í fyrsta skipti hér á landi greinst veiran BPIV3 (Bovine Parainfluenza Virus 3) en það er veira sem veldur vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum. MAST telur ekki ástæðu til að grípa til sérstakra aðgerða vegna þessarar greiningar en telur rétt að minna á mikilvægi sóttvarna í umgengni…Lesa meira

true

Fyrsta ungmennaþing Vestfjarða haldið

Um síðustu helgi fór fram fyrsta Ungmennaþing Vestfjarða. Þingið var haldið á Laugarhóli í Bjarnarfirði og mættu 33 ungmenni á aldrinum 13-18 ára alls staðar að af Vestfjörðum. Fram kemur á vef Vestfjarðastofu að þingið hafi verið líflegt og fræddust ungmennin meðal annars um lýðræði, ungmennaráð, hvernig þau geta haft áhrif á samfélagið sitt, samstarf…Lesa meira

true

Lokun á Kjalarnesi í klukkutíma í dag

Í dag, fimmtudag 10. nóvember, er áætlað að sprengja fyrir undirgöngum við Varmhóla á Kjalarnesi. Reiknað er með að sprengt verði á milli klukkan 14:30 og 15:30. Öll umferð verður stöðvuð á meðan sprengt er. Þetta kemur fram í tísti frá Vegagerðinni.Lesa meira

true

Brák afhent fjölnota björgunartæki til frjálsra afnota

Nýverið hljóp á snærið hjá Björgunarsveitinni Brák í Borgarnesi. Sveitinni var afhent til frjálsra afnota fjölnota björgunartæki sem gefur, að sögn Elínar Matthildar Kristinsdóttur formanns sveitarinnar, mikla möguleika til leitar og björgunar við erfiðustu aðstæður. Um er að ræða „All terrain“ snjóbíl af gerðinni Hägglund gerður hefur verið upp frá A til Ö. „Þessi bíll…Lesa meira

true

Snæfell vann sinn sjöunda sigur í röð

KR og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Meistaravöllum í Vesturbænum. Fyrir leik voru liðin jöfn með tólf stig í deildinni ásamt Þór Akureyri í 2. til 4. sæti og því um toppslag að ræða. Það skildi lítið á milli liðanna í fyrsta leikhluta, eftir…Lesa meira

true

Þveginn og þurrkaður þegar þarf

Tindur, sem er búsettur á Akranesi, er hundur af Samójed tegund, mongólskir að uppruna. Hlutverk þessara hunda var að starfa fyrir hreindýrahirðingja, notaðir til að gæta dýranna og draga sleða ásamt því að vera sérlega góðir félagar. Þá höfðu þeir það hlutverk að veita börnunum hlýju í hirðingatjöldunum, enda feldur þeirra einkar hlýr og geðslag…Lesa meira

true

Vetrarríki spáð á fjallvegum fyrir vestan

Vegagerðin bendir á að á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er útlit fyrir krapa á vegum seinnipartinn í dag, en kólnar með hríð í kvöld og í nótt. Á morgun verður norðaustan 17-22 m/s og snjóbylur á þessum sömu heiðavegum. Skafrenningur verður og blint á Klettshálsi og eins hríð á Gemlufallsheiði.  Lesa meira

true

Bjóða upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi á laugardaginn

Laugardaginn 12. nóvember nk. munu Lionsklúbbur Akraness og Félag sykursjúkra bjóða fólki upp á fría blóðsykursmælingu á Akranesi. Mælingin fer fram í verslanamiðstöðinni að Smiðjuvöllum 32 (við Bónus) á laugardaginn milli klukkan 14.00 og 16.00. Apótek Vesturlands styrkir félögin og leggur til mælingarbúnað. Sykursýki (diabetes mellitus) er efnaskiptasjúkdómur sem einkennist af of háum blóðsykri, sem…Lesa meira

true

Heima-Skagi var vel heppnaður – MYNDASYRPA

Tónlistarhátíðin Heima-Skagi fór fram á laugardagskvöldið í gamla bænum á Akranesi og mátti sjá fólk á röltinu út um allan neðri Skagann langt fram á kvöld. Undirritaður var einn af þeim fjölmörgu sem tóku röltið þetta kvöld og fyrsti viðkomustaður var Blikksmiðja Guðmundar þar sem rokksveitin Vintage Caravan sem var stofnuð árið 2006 réð ríkjum.…Lesa meira

true

Boðið verður upp á blóðsykursmælingu í Borgarnesi í næstu viku

Boðið verður upp á blóðsykursmælingar í Borgarnesi í næstu viku. Hún er á vegum Lionsklúbbsins Öglu. Mælingin verður í fjóra daga, 15.-18. nóvember, á milli klukkan 11 og 12 og svo síðdegis frá klukkan 16 til 18 í Hyrnutorgi. „Við hvetjum sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri og huga vel að heilsunni,“ segir…Lesa meira