Fréttir

true

Prestsvígsla í Dómkirkjunni á sunnudaginn

Prestsvígsla verður í Dómkirkjunni í Reykjavík á sunnudaginn klukkan 13. Þar verða þrír prestar vígðir til embættis. Þeirra á meðal er Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back sem vígist til Borgarprestakalls. Hin prestsefnin eru þær Hafdís Davíðsdóttir sem vígist til Laufásprestakalls og Helga Bragadóttir sem vígist til Glerárprestakalls. Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir vígsluþegana, vígsluvottar…Lesa meira

true

Kallar eftir ábendingum um gönguleiðir í Borgarfirði

Gísli Einarsson í Borgarnesi er forseti Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Hann hefur nú tekið að sér fyrir útgáfunefnd Ferðafélags Íslands að skrifa bók um gönguleiðir í uppsveitum Borgarfjarðar, en stefnt er að útgáfu hennar innan tveggja ára. Miðað er við að um eða yfir tuttugu gönguleiðum verði gerð skil í bókinnni. „Fyrsta skref er að velja gönguleiðir…Lesa meira

true

Umsóknir um framlög vegna verslana í dreifbýli

Innviðaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar þar sem verslanir í fámennum byggðarlögum geta sótt um. Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa.…Lesa meira

true

Vill forðast umhverfisslys við Lárvaðal

Eigendur jarðarinnar Mýrarhúsa í Grundarfirði hafa gert margháttaðar athugasemdir við deiliskipulag vegna hótels sem til stendur að reisa í landi Skerðingsstaða. Þar er gert ráð fyrir byggingu 100 herbergja hótels og fimm smáhýsa. Hótelið verður með útsýni að vesturhlið Kirkjufells, sem nýtur sífellt meiri vinsælda og er svæðið orðið með fjölfarnari ferðamannastöðum á landinu. Gera…Lesa meira

true

Maríuerla er fugl ársins 2022

Dagur íslenskrar náttúru er í dag, 16. september. Fyrir nokkrum árum var ákveðið að heiðra Ómar Ragnarsson með því að velja dag náttúrunnar daginn sem Ómar kom í þennan heim. Fuglavernd hefur staðið fyrir kosningu á Fugli ársins 2022 undanfarnar vikur og mánuði. Nú er niðurstaðan um sigurvegarann komin, en fugl ársins er maríuerla. Fugl…Lesa meira

true

Vara við að börn og unglingar taki áskorunum á TikTok

Í bréfi sem Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akranesi, sendi foreldum barna í skólanum í morgun kemur fram að Brúin sem er starfshópur um forvarnir á Akranesi hafi miklar áhyggjur af áhættuhegðun barna og unglinga. „Undanfarið hefur borið á því að börn og unglingar eru að taka áskorunum á samfélagsmiðlinum TikTok um allskyns áhættuhegðun. Hegðun,…Lesa meira

true

Þrjú ný fjölbýlishús skipulögð í Borgarnesi

Gert er ráð fyrir þremur nýjum fjölbýlishúsum ásamt íbúðarhúsum á nýrri deiliskipulagstillögu sem auglýst var fyrir Dílatanga og nærsvæði í Borgarnesi í vor. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna samhljóða á fundi sínum í síðustu viku, með þeim breytingum sem gerðar voru með tilliti til umsagna og athugasemda sem bárust á kynningartíma. Lóð og tvö ný hús heimiluð…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við nýjan matskála í Vatnaskógi

Um miðjan ágúst tók Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra skóflustungu að nýjum matskála í sumarbúðunum í Vatnaskógi í Svínadal. Þar voru viðstaddir rúmlega hundrað drengir sem dvöldu í 13. flokki sumarsins, Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, þingmenn og 150 aðrir gestir. Framkvæmdir hófust í fyrstu viku septembermánaðar og sjá fagmenn um verkið ásamt sjálfboðaliðum.…Lesa meira

true

Leggjast gegn gjaldtöku í þegar byggð og fjármögnuð göng

Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti Hvalfjarðarsveitar, sendi innviðaráðuneytinu 5. ágúst sl. umsögn fyrir hönd sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar vegna fyrirætlunar ráðherra um gjaldtöku fyrir umferð í jarðgöngum. Sveitarstjórn hefur nú staðfest umsögnina, en í bókun sveitarstjórnar segir: „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur undir að þjóðfélagslegur ávinningur fylgi því að hafa góðar samgöngur og það sé hagur allra landsmanna að flýta…Lesa meira

true

Boða stofnfund Hollvinasamtaka Hamarshússins í Borgarnesi

Ákveðið hefur verið að efna til stofnfundar Hollvinasamtaka Hamarshússins í Borgarnesi. Verður fundurinn haldinn í Hamarshúsinu við golfvöllinn fimmtudaginn 22. september kl. 20.30. Þeir Guðmundur Eyþórsson og Ingimundur Ingimundarson eru skrifaðir fyrir stofnfundarboði, en þess má geta að Guðmundur átti hluta æsku sinnar í húsinu. Á fundinum verður m.a. borin upp tillaga að lögum félagsins…Lesa meira