Fréttir

true

Fjallað um ný göng undir Hvalfjörð í skýrslu RHA

Vegagerðin hefur tekið saman og birt yfirlitsáætlun um þá jarðgangakosti sem hafa verið til umræðu og skoðunar undanfarin misseri. Litið er á skýrsluna sem grunn að frekari greiningu og samantekt á þeim athugunum sem hafa verið gerðar til þessa. Alls er um að ræða 23 mismunandi jarðgangakosti á landinu; 18 á landsbyggðinni og fimm á…Lesa meira

true

Frelsisvitinn afhjúpaður á Hellissandi

Síðastliðinn fimmtudag var listaverkið Frelsisvitinn eftir þýska listamanninn Jo Kley, vígt við hátíðlega athöfn við sjávarsíðuna á Hellissandi. Frelsisvitinn er viti númer 25 eftir Jo Kley, en vitum eftir hann hefur verið komið fyrir í jafn mörgum löndum. Segja má að það sé heiður fyrir Snæfellsbæ að listamaðurinn hafi valið Hellissand fyrir styttuna. Fjölmenni mætti…Lesa meira

true

Meðvera er ný samskiptagátt við krabbameinssjúklinga

Í krabbameinsþjónustu Landspítalans hefur verið tekin í notkun ný rafræn samskiptagátt sem nefnist Meðvera. Hún bætir þjónustu við sjúklinga umtalsvert. Það var Krabbameinsfélagið sem kom verkefninu á laggirnar. Brýnt þótti að finna nýjar og nútímalegri leiðir til að tryggja og efla samskipti milli fagfólks og þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð. Verkefnið er unnið í samstarfi…Lesa meira

true

,,Hafnarfjallið hefur aldrei verið eins fallegt“

Anna Þórhildur og Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsbörn eru frá bænum Brekku í Norðurárdal. Systkinin gengu í Varmalandsskóla og Menntaskóla Borgarfjarðar en héldu svo í háskólanám til Reykjavíkur og síðar erlendis. Anna og Bjarki eru náin og segjast vera góðir vinir, þau stríði þó hvort öðru sé góð innistæða fyrir og gera óspart grín að foreldrum…Lesa meira

true

Allir að hjóla í Grundaskóla

Það er óhætt að segja að börn og ungmenni í Grundaskóla á Akranesi hafi tileinkað sér vistvænar samgöngur. Að sögn Sigurðar Arnars Sigurðssonar skólastjóra, sem sendi Skessuhorni þessar myndir, hjóla eða ganga flestir nemendur og starfsmenn til og frá skóla. Miðað við myndirnar er það líklegast rétt og hreint aldeilis til fyrirmyndar.Lesa meira

true

Sveitungar búnir að leggja á klárana og Geirmundur á leiðinni í Þverárrétt

Í gamla samkomuhúsinu við Þverárrétt í Þverárhlíð hefur verið haldið töðugjaldaball í áratugi, uppskeruhátíð eftir heyskapinn og haustið handan við hornið. Ball þetta er alltaf síðasta föstudag í ágúst, sem einmitt er í dag. Nú er engin undantekning á hefðinni og heldur ekkert kóvid vesen í gangi. Sem fyrr eru það kvenfélagskonurnar í sveitinni sem…Lesa meira

true

Fiskimjöli lestað á Akranesi

Flutningaskipið Wilson Cadiz var í gærkvöldi að ljúka við að lesta mjöl í Akraneshöfn. Hafnsögubáturinn Haki beið þess að lóðsa skipið út úr höfninni.Lesa meira

true

Harpa Þórsdóttir er nýr þjóðminjavörður

Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar. Harpa hefur starfað við íslensk og erlend söfn í rúm 20 ár og sem safnstjóri Listasafns Íslands stjórnað einu af þremur höfuðsöfnum íslenska ríkisins. Þar hefur hún á undanförnum árum leitt starfsemina inn í nýja tíma með áherslu á að…Lesa meira

true

Hörð mótmæli gegn vindorkuveri í Hvalfirði

Fjöldi athugasemda hafa borist við fyrirætlanir fyrirtækisins Zephyr Iceland um byggingu vindorkuvers á Brekkukambi í Hvalfirði. Í gær fékk sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afhent mótmæli sem 1709 manns hafa undirritað. Eru það íbúar, sumarhúsaeigendur og aðrir velunnarar sveitarinnar. Fram kom við afhendingu mótmælanna að vilji stendur til þess að vita persónulega afstöðu einstakra sveitarstjórnarmanna til málsins. Einnig…Lesa meira

true

Fyrsti kjarasamningur slökkviliðsstjóra

Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða hér á landi hafa samþykkt sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þeir sem fengu að kjósa um samninginn voru félagsmenn LSS sem sinna stöðugildum stjórnenda slökkviliða og greiða iðgjald sem nemur 20% starfshlutfalli eða meira. Tæp 94% þeirra sem kusu samþykktu samninginn en kosningaþátttaka var 71,7%. Þetta er fyrsti…Lesa meira