Fyrsti kjarasamningur slökkviliðsstjóra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Slökkviliðsstjórar og aðrir stjórnendur slökkviliða hér á landi hafa samþykkt sinn fyrsta kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þeir sem fengu að kjósa um samninginn voru félagsmenn LSS sem sinna stöðugildum stjórnenda slökkviliða og greiða iðgjald sem nemur 20% starfshlutfalli eða meira. Tæp 94% þeirra sem kusu samþykktu samninginn en kosningaþátttaka var 71,7%.\r\n\r\nÞetta er fyrsti samningurinn sem slökkviliðsstjórar gera fyrir sig en áður var einungis einn kjarasamningur sem gilti fyrir alla félagsmenn sem unnu fyrir sveitarfélögin. Samningsaðilar voru sammála í síðustu kjarasamningaviðræðum um að það væri óeðlilegt að undirmenn væru að semja um kjör sinna yfirmanna. Samhliða þessum kjarasamningi er búið að útfæra greiðslu vegna bakvakta sem hefur verið mikil óánægja með á meðal slökkviliðsstjóra og búið að endurmeta störf þeirra hjá verkefnastofu Starfsmats, sem er stofnun sem mælir reynslu og menntun til launa. Þessi samningur hefur sama gildistíma og almenni kjarasamningurinn og gildir því til 30. september 2023.\r\n\r\nNú er 31 slökkviliðsstjóri starfandi í landinu auk jafn margra annarra stjórnenda en sumir kjósa að vera í öðrum stéttarfélögum. Það eru ellefu slökkviliðsstjórar og 20 varaslökkviliðsstjórar í 50% starfi eða minna á 75 starfsstöðvum um landið. 900 manns sinna slökkvi- og björgunarþjónustu. Rúmlega helmingur þeirra eru í tímavinnu og mætir þegar kallið kemur en æfa með reglubundnum hætti.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrsti kjarasamningur slökkviliðsstjóra - Skessuhorn