
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur við mótmælum 1709 einstaklinga sem lýsa sig andvíga vindmyllugarði á Brekkukambi. Ljósm. jh.
Hörð mótmæli gegn vindorkuveri í Hvalfirði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjöldi athugasemda hafa borist við fyrirætlanir fyrirtækisins Zephyr Iceland um byggingu vindorkuvers á Brekkukambi í Hvalfirði. Í gær fékk sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afhent mótmæli sem 1709 manns hafa undirritað. Eru það íbúar, sumarhúsaeigendur og aðrir velunnarar sveitarinnar. Fram kom við afhendingu mótmælanna að vilji stendur til þess að vita persónulega afstöðu einstakra sveitarstjórnarmanna til málsins. Einnig var mælst til þess að sveitarstjórn kæmi formlegri höfnum á framkvæmdum til skila sem allra fyrst, til að létta biðinni af íbúum og framkvæmdaraðilum.\n\nSveitarstjórn gerði á fundi sínum í vikunni sjálf fjölmargar athugasemdir við matsáætlun Zephyr Iceland auk þess sem hún samþykkti einróma ítarlega umsögn við matsáætlun fyrirtækisins. Farið er fram á mun nákvæmari gögn frá fyrirtækinu, t.d. er varðar rannsóknir á fuglalífi og veðurfari auk sjónmengunar.\n\nEkki er gert ráð fyrir iðnaðarsvæði á Brekkukambi í því aðalskipulagi sem í gildi er, en fyrirtækið vill reisa 8-12 vindmyllur, líklega 250 háar eða hærri, á fjallinu sem er um 650 metra hátt. Zephyr Iceland er norskt að uppruna; norska vindorkufyrirtækið Zephir hefur stofnaði það sem dótturfyrirtæki á Íslandi með það að markmiði að reisa vindmyllur og vindmyllugarða hér á landi.\n\nVindmyllurnar sem fyrirhugað er að reisa á Brekkukambi myndu sjást víða að og hafa veruleg áhrif á ásýnd Hvalfjarðar og nágrennis. Til viðbótar þeim mótmælum sem nú hafa borist hafa tugir athugasemda borist Skipulagsstofnun. Eru þær allar á sama veg.\n\nSkýra stefnumótun um vindorkumál virðist vanta af hendi stjórnvalda á landsvísu og er sveitarstjórnum á Vesturlandi sem annars staðar vandi á höndum er varðar ákvarðanatöku um staðsetningu þeirra. <em>Fjallað verður ítarlega um málið í Skessuhorni í næstu viku.</em>",
"innerBlocks": []
}