Fréttir

true

Kári með góðan sigur á Augnabliki

Kári tók á móti Augnabliki í 3. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Gestirnir úr Kópavogi komust strax yfir í leiknum á fimmtu mínútu þegar þeir fengu aukaspyrnu hægra megin og sendu boltann fyrir inn í teig en þar var farið aftan í leikmann Augnabliks og víti dæmt. Jón…Lesa meira

true

Samstarf við Grænlendinga um loðnurannsóknir

Loðnurannsóknir hefjast af krafti í haust. Grænlendingar og Íslendingar taka höndum saman við rannsóknirnar, en samið hefur verið um að hið nýja grænlenska rannsóknaskip Tarajoq, haldi til loðnurannsókna á laugardaginn. Um borð verða meðal annars sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun svo koma til liðs við leiðangurinn 5. september í þessari sameiginlegu loðnurannsókn þjóðanna.…Lesa meira

true

Réttir á Vesturlandi í haust

Líkt og undanfarin ár hefur Bændablaðið safnað upplýsingum um réttir á landinu. Listinn er birtur í blaðinu sem kom út í dag, en bent á að uppfærður réttalisti er jafnan að finna á bbl.is. Skessuhorn leitaði einnig viðbótarupplýsinga þar sem eyður voru í lista Bændablaðsins og því má bæta við að bændur og fjáreigendur hafa…Lesa meira

true

Trausti skrifar um flugvallamál og Mýraflugvöll

„Umræða um flugvelli hefur staðið áratugum saman, og mun gera það áfram,“ skrifar Trausti Jónsson veðurfræðingur og íbúi í Borgarnesi í aðsendri grein í Skessuhorni. „Gallinn er hins vegar sá að oft er engan veginn skýrt hver tilgangur þeirra á að vera. Oftast heyrist orðið „varaflugvöllur“ notað. Greinilega er einhver ruglingur um það hvað liggur…Lesa meira

true

Rafmagnslaust á Reykholtsdalslínu frá miðnætti

Rarik boðar að rafmagnslaust verði á flutningslínunni frá Deildartungu í Reykholtsdal að Augastöðum í Hálsasveit föstudaginn 26.08.2022 frá miðnætti til kl. 02:00 vegna vinnu við dreifikerfi Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Framkvæmdir og viðhald í Hvalfjarðarsveit

Endurnýjun á þaki millibyggingar Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit er lokið ásamt stórum hluta þeirra viðhaldsviðgerða sem nauðsynlegar voru í kjölfar ástandsskýrslu Verkís og sama gildir um viðhaldsviðgerðir í leikskólanum Skýjaborg vegna ástandsskýrslu Verkís þar. Fram kemur á heimasíðu Hvalfjarðasveitar að gatnagerð við Lyngmel sé lokið og fyrstu lóðaframkvæmdir rétt handan við hornið en þar hefur öllum…Lesa meira

true

Samningar undirritaðir um þjónustu Borgarbyggðar við Skorradalshrepp

Samningar hafa náðst milli Skorradalshrepps og Borgarbyggðar um ýmsa þjónustu sem hreppurinn hefur keypt af nágrönnum sínum. Samningarnir taka til þeirrar þjónustu sem Borgarbyggð veitir íbúum Skorradalshrepps svo sem í skólamálum, brunavörnum, félagsþjónustu og safnamálum og fjalla um fyrirkomulag, kostnað og fleira. Fyrri samningar voru löngu úr gildi fallnir og var um tíma deilt um…Lesa meira

true

Innflytjendur með lægri laun í Covid

Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hefur gefið út skýrslu um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði á meðan á Covid kreppunni stóð. Byggir hún á skoðanakönnun á landsvísu þar sem rúmlega sextán þúsund manns tóku þátt, á árunum 2016, 2017 og á meðan á Covid stóð árið 2020. Markmiðið var að…Lesa meira

true

Aukin þjónusta við persónulega talsmenn fatlaðs fólks

Fólk sem gerist persónulegir talsmenn fatlaðs fólks getur nú sótt námskeið á netinu þegar því hentar. Hingað til hafa staðnámskeið verið haldin tvisvar sinnum á ári og eru nú um 170 manns sem bíða eftir því að geta lokið þeim til að verða persónulegir talsmenn. Með rafrænu útfærslunni verður engin þörf á að bíða enda…Lesa meira

true

Fór á hjóli 41 ferð upp og niður Akrafjall

Um síðustu áramót setti Guðgeir Guðmundsson á Akranesi sér það takmark að fara 41 sinni niður á hjóli frá öðrum hvorum toppnum á Akrafjalli, áður en hann yrði fertugur. Í allan vetur er hann búinn að hjóla upp og niður fjallið í sól, snjó, myrkri, þoku, rigningu, logni og hvassviðri enda allra veðra von á…Lesa meira