{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Loðnurannsóknir hefjast af krafti í haust. Grænlendingar og Íslendingar taka höndum saman við rannsóknirnar, en samið hefur verið um að hið nýja grænlenska rannsóknaskip Tarajoq, haldi til loðnurannsókna á laugardaginn. Um borð verða meðal annars sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun svo koma til liðs við leiðangurinn 5. september í þessari sameiginlegu loðnurannsókn þjóðanna. Markmiðið er að rannsaka útbreiðslu og magn ungloðnu og fullorðinnar loðnu ásamt því að kanna ástand vistkerfisins. Niðurstöður loðnumælinganna verða lagðar til grundvallar að upphafsveiðiráðgjöf fyrir vertíðina 2023/24 sem og endurskoðaðri ráðgjöf fyrir vertíðina næsta vetur. Á myndinni er Tarajoq sem nú liggur við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.",
"innerBlocks": []
}
Samstarf við Grænlendinga um loðnurannsóknir - Skessuhorn