
Lauslegt umfang Mýravallar. Eins og sjá má er neðri hluta Álftaneshrepps umturnað (sama ætti við um öll önnur möguleg vallarstæði). Ekki er neitt vit í að beina flugvallarumferð um Borgarnes. Ný leið (göng eða brú) er því meðal forsenda framkvæmdarinnar og eykur kostnað við hana nokkuð. Eðlilegt er að halda áfram með flugvallarveginn til norðurs í átt að núverandi hringvegi ofan Borgarness.
Trausti skrifar um flugvallamál og Mýraflugvöll
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Umræða um flugvelli hefur staðið áratugum saman, og mun gera það áfram,“ skrifar Trausti Jónsson veðurfræðingur og íbúi í Borgarnesi í aðsendri grein í Skessuhorni. „Gallinn er hins vegar sá að oft er engan veginn skýrt hver tilgangur þeirra á að vera. Oftast heyrist orðið „varaflugvöllur“ notað. Greinilega er einhver ruglingur um það hvað liggur að baki þess hugtaks. Inn í þetta blandast svo umræðan um Reykjavíkurflugvöll og örlög hans, oft á illskiljanlegan hátt. Þegar farið er í saumana á hugtakinu kemur fljótt í ljós að verið er að ræða mjög mismunandi gerðir „varavallar“ og lítill eða enginn greinarmunur gerður á – því miður.“\r\n\r\nÍ greininni fjallar Trausti m.a. um starfshóp sem hann sat í fyrir margt löngu sem hafði það verkefni að rannsaka hentug flugvallasvæði hér á landi. Síðar í greininni fjallar hann sérstaklega um Mýraflugvöll, staðsetningu hans og umfang og hvernig samgöngum þyrfti að hátta til að umferð að millilandaflugvelli ætti greiða leið.\r\n\r\n<a href=\"https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/myraflugvollur-faeinar-hugleidingar/\">Sjá grein Trausta hér.</a>",
"innerBlocks": []
}