
Stefán Broddi Guðjónsson, sveitarstjóri Borgarbyggðar, og Jón Eiríkur Einarsson, oddviti Skorradalshrepps, að lokinni undirritun samkomulagsins milli sveitarfélaganna. Ljósm. borgarbyggd.is
Samningar undirritaðir um þjónustu Borgarbyggðar við Skorradalshrepp
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samningar hafa náðst milli Skorradalshrepps og Borgarbyggðar um ýmsa þjónustu sem hreppurinn hefur keypt af nágrönnum sínum. Samningarnir taka til þeirrar þjónustu sem Borgarbyggð veitir íbúum Skorradalshrepps svo sem í skólamálum, brunavörnum, félagsþjónustu og safnamálum og fjalla um fyrirkomulag, kostnað og fleira.\r\n\r\nFyrri samningar voru löngu úr gildi fallnir og var um tíma deilt um reikniaðferðir sem notast var til að finna út greiðslur Skorradalshrepps til Borgarbyggðar. Enduðu samskiptin með því að þáverandi forsvarsmenn Borgarbyggðar sögðu að allri þjónustu yrði hætt í sumar, næðist ekki samkomulag um upphæðir og greiðslu þeirra. Samningar hafa nú náðst og verið undirritaðir en þeir gilda frá janúar 2021 og koma í stað annarra samninga sem runnir voru út. Samningarnir gilda til júníloka 2025 en undirritun þeirra er með fyrirvara um samþykki hreppsnefndar Skorradalshrepps og sveitarstjórnar Borgarbyggðar.\r\n\r\nÁ heimasíðu Borgarbyggðar kemur fram að leiðin að samkomulaginu hafi verið nokkuð löng en það væri ánægjulegt að vera komin á áfangastað. „Nú hlökkum við til áframhaldandi góðs samstarfs við nágranna okkar í Skorradal,“ segir enn fremur í frétt Borgarbyggðar.",
"innerBlocks": []
}