Margir innflytjendur vinna verðmæt störf í ferðaþjónustu. Mynd frá Hótel Varmalandi í Stafholtstungum.

Innflytjendur með lægri laun í Covid

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vífill Karlsson hagfræðingur og atvinnuráðgjafi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hefur gefið út skýrslu um stöðu innflytjenda á vinnumarkaði á meðan á Covid kreppunni stóð. Byggir hún á skoðanakönnun á landsvísu þar sem rúmlega sextán þúsund manns tóku þátt, á árunum 2016, 2017 og á meðan á Covid stóð árið 2020. Markmiðið var að greina stöðu hópsins á vinnumarkaði á Covid árinu 2020 en einnig að bera stöðu hans á vinnumarkaði á Vesturlandi saman við stöðuna á landsvísu. Í niðurstöðum Vífils kemur m.a. fram að innflytjendur séu með lægri laun en aðrir landsmenn en séu jafnframt ekki óánægðari með þau en innfæddir. Hlutfallslega fleiri innflytjendur á landsbyggðinni starfa við sjávarútveg og ferðaþjónustu en á höfuðborgarsvæðinu og á landsvísu störfuðu þeir helst við framleiðslu, ferðaþjónustu og byggingastarfsemi á árinu 2020. Í júlí 2022 var atvinnuleysi orðið áþekkt því sem það var í sama mánuði 2018, en vinnumarkaðstengdir þættir voru meðal verstu búsetuskilyrðaþáttanna árið 2020 að mati svarenda.\r\n\r\n<strong>Hundrað svör af Vesturlandi</strong>\r\n\r\nTekið er fram í skýrslunni að taka skuli niðurstöðum er varðar Vesturland af varfærni þar sem aðeins um hundrað innflytjendur af því svæði tóku þátt í könnuninni. En samkvæmt þeim virtist staða innflytjenda almennt betri þar en annars staðar á landsbyggðinni. Sáttastir voru svarendur við framfærslu, skóla og umferðarmál og ósáttast var fólk við þætti er tengjast menningu og háskóla.\r\n\r\nMunurinn á stöðu innflytjenda á vinnumarkaði eftir því hvort þeir bjuggu á landsbyggðinni eða á höfuðborgarsvæðinu fólst aðallega í því að tekjur þeirra voru meiri á landsbyggðinni, en atvinnuúrval meira á höfuðborgarsvæðinu. Vísbendingar voru um að innflytjendur á Vesturlandi hafi staðið lítið eitt betur en annars staðar á landsbyggðinni en tekið er fram að ekki megi gera of mikið úr þeirri niðurstöðu vegna gagnaskorts.\r\n\r\n<strong>Auka þarf kennslu og upplýsingar</strong>\r\n\r\nÍ lok skýrslunnar segir Vífill að niðurstöður sínar séu í nokkru samræmi við svipaðar erlendar rannsóknir sem horft var til. Staðan sé visst áhyggjuefni og brýnt sé að bæta úr ýmsum þáttum er snúa að búsetuskilyrðum innflytjenda í landinu, svo sem að auka tungumálakennslu og bjóða hana á hagstæðara verði. Ennfremur sé mikilvægt að upplýsa nýja íbúa vel um réttindi sín og skyldur, t.d. með því að koma á fót svokölluðu gagnatorgi þar á ýmsum tungumálum auk íslenskunnar. Margt annað áhugavert má sjá í skýrslunni sem nú hefur verið sett á vefinn ssv.is\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Innflytjendur með lægri laun í Covid - Skessuhorn