Hér er Fellsendarétt í Dölum við það að hefjast og fólk að komast í gírinn. Það er ágætt að staðsetja sig hátt uppi til að meta aðstæður, áður en alvara réttarstarfanna hefst. Ljósm. bj.

Réttir á Vesturlandi í haust

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Líkt og undanfarin ár hefur Bændablaðið safnað upplýsingum um réttir á landinu. Listinn er birtur í blaðinu sem kom út í dag, en bent á að uppfærður réttalisti er jafnan að finna á bbl.is. Skessuhorn leitaði einnig viðbótarupplýsinga þar sem eyður voru í lista Bændablaðsins og því má bæta við að bændur og fjáreigendur hafa sent Skessuhorni leiðréttingar. Fjár- og stóðréttir á landinu verða nú í fyrsta skipti í þrjú ár með hefðbundnum brag, ekki markaðar af samkomutakmörkunum vegna Covid-19. Fyrstu réttir á Vesturlandi verða laugardaginn 3. september þegar réttað verður fé af Síðufjalli í Nesmelsrétt í Hvítársíðu og daginn eftir verður svo réttað í Kaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðarhreppi. Helgina þar á eftir fer síðan allt á fullt í réttarhaldi þegar smalað verður og réttað víðs vegar í landshlutanum.\r\n\r\nRéttir á Vesturlandi verða þessa daga:\r\n\r\nArnarhólsrétt í Helgafellssveit sunnudaginn 18. sept. kl. 11.00\r\n\r\nBláfeldarrétt í Staðarsveit laugardaginn 24. sept.\r\n\r\nBrekkurétt í Norðurárdal sunnudaginn 11. sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 25. sept.\r\n\r\nBrekkurétt í Saurbæ í Dölum sunnudaginn 18. sept. kl. 11.00, seinni réttir sun. 2. okt. kl. 13.00\r\n\r\nFellsendarétt í Miðdölum í Dölum sunnudaginn 18. sept. kl. 14.00, aðrar réttir sun. 25. sept. kl. 14.00, þriðju réttir sun. 2. okt. kl. 14.00\r\n\r\nFlekkudalsrétt á Fellsströnd Dölum laugardaginn 17. sept., seinni réttir lau. 1. okt.\r\n\r\nFljótstungurétt á Hvítársíðu laugardaginn 10. sept. og sun. 11. sept.\r\n\r\nGillastaðarétt í Laxárdal Dölum sunnudaginn 18. sept. kl. 12.00, seinni réttir sun. 2. okt. kl. 16.00\r\n\r\nGrafarrétt í Breiðuvík á Snæfellsnesi laugardaginn 24. sept.\r\n\r\nGrímsstaðarétt á Mýrum þriðjudaginn 13. sept. kl. 10.00, aðrar réttir þri. 27. sept. kl. 14.00, þriðju réttir mán. 3. okt.\r\n\r\nHítardalsrétt í Hítardal á Mýrum mánudaginn 12. sept. kl. 10.00, aðrar réttir 25. sept. kl. 16.00, þriðju réttir mán. 4. okt.\r\n\r\nHornsrétt í Skorradal sunnudaginn 11. sept. kl. 10.00\r\n\r\nHólmarétt í Hörðudal í Dölum sunnudaginn 25. sept. kl. 10.00, aðrar réttir lau. 2. okt. kl. 10.00\r\n\r\nHrafnkelsstaðarétt í Grundarfirði laugardaginn 17. sept.\r\n\r\nKaldárbakkarétt í Kolbeinsstaðarhr. sunnudaginn 4. sept. kl. 11.00\r\n\r\nKirkjufellsrétt í Haukadal í Dölum laugardaginn 17. sept, seinni réttir lau. 1. okt.\r\n\r\nKlofningsrétt í Beruvík á Snæfellsnesi. Uppl. vantar\r\n\r\nLangholtsrétt í Eyja- og Miklaholtshreppi mánudaginn 19. september.\r\n\r\nLjárskógarétt í Laxárdal í Dölum laugardaginn 10. sept.\r\n\r\nMýrar í Grundarfirði laugardaginn 17. sept.\r\n\r\nMýrdalsrétt í Hnappadal þriðjudaginn 20. sept. kl. 16.00, seinni réttir sun. 9. okt. kl. 16.00\r\n\r\nNesmelsrétt í Hvítársíðu, Mýr. laugardaginn 3. sept.\r\n\r\nNúparétt í Melasveit, Borg. sunnudaginn 11. sept. kl. 13.00, seinni réttir lau. 24. sept.\r\n\r\nOddsstaðarétt í Lundarreykjadal miðvikudaginn 7. sept. kl. 9.00, seinni réttir sun. 2. okt. kl. 10.00\r\n\r\nÓlafsvíkurrétt í Ólafsvík laugardaginn 17. sept.\r\n\r\nÓsrétt á Skógarströnd í Dölum föstudaginn 30. sept. kl. 10.00\r\n\r\nRauðsgilsrétt í Hálsasveit sunnudaginn 18. sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 2. okt. kl. 14.00\r\n\r\nReynisrétt undir Akrafjalli í Hvalfjarðarsveit laugardaginn 17. sept.\r\n\r\nSkarðsrétt, Skarðsströnd í Dölum sunnudaginn 18. sept. kl. 11.00, seinni réttir sun. 2. okt. kl. 14.00\r\n\r\nSkerðingsstaðarétt í Hvammsveit í Dölum sunnudaginn 18. sept. kl. 11.00, seinni réttir sun. 3. okt. kl. 13.\r\n\r\nSvarthamarsrétt á Hvalfj.strönd sunnudaginn 18. sept. kl. 10.00, seinni réttir sun. 2. okt.\r\n\r\nSvignaskarðsrétt í Borgarfirði mánudaginn 12. sept. kl. 10.00, aðrar réttir mán. 26. sept., þriðju réttir mán. 3. okt.\r\n\r\nTungurétt á Fellsströnd í Dölum föstudaginn 16. sept.\r\n\r\nVörðufellsrétt á Skógarströnd í Dölum laugardaginn 17. sept. kl. 13.00, seinni réttir sun. 9. okt. kl. 13.00\r\n\r\nÞverárrétt í Eyja- og Miklaholtshreppi sunnudaginn 18. september.\r\n\r\nÞverárrétt í Þverárhlíð í Borgarfirði mánudaginn 12. sept. kl. 7.00, aðrar réttir sunnud. 18. sept. kl. 17.00, þriðju réttir sunnud. 25. sept. kl. 16.00\r\n\r\nÞæfusteinsrétt á Hellissandi/Rifi laugardaginn 17. sept.\r\n\r\nÖlkeldurétt í Staðarsveit laugardaginn 24. sept.",
"innerBlocks": []

Réttir á Vesturlandi í haust - Skessuhorn