Fréttir

true

Konur úr Borgarbyggð sigursælar á púttmóti 60 ára og eldri

Íslandsmót í pútti 60 ára og eldri fór fram á Ísafirði 19. ágúst sl. Púttarar úr Borgarbyggð, undir nafninu Pútthópur Hamars, fjölmenntu á mótið; fjórtán konur og níu karlar. Árangur kvennanna var mjög góður. Berghildur Reynisdóttir vann með 73 höggum. Þóra Stefánsdóttir var önnur með 74 högg og Heba Magnúsdóttir varð fjórða með 76 högg.…Lesa meira

true

Festir annast rammaskipulag fyrir Brákarey

Í gær staðfesti Borgarbyggð samning við fasteignaþróunarfélagið Festi og JVST arkítekta um gerð rammaskipulags fyrir Brákarey í Borgarnesi. Á fundi byggðarráðs 28. júlí síðastliðinn kom fram að þessir aðilar hefðu lýst áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í Brákarey í samstarfi við bæjaryfirvöld og lagði sveitarstjóri í framhaldinu fram drög að samningi sem…Lesa meira

true

Rafmagnslaust við hluta Borgarbrautar á morgun

Vegna framkvæmda verður rafmagnslaust við hluta Borgarbrautar í Borgarnesi á morgun, fimmtudaginn 25. ágúst. Rafmagn verður ekki á Borgarbraut 18-20-26-28 og 30 frá klukkan 10:00 til 17:00, eða fram eftir degi vegna vinnu við dreifikerfi. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9000 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

true

Áttundi bekkur kíkti í heimsókn til Skessuhorns

Hluti áttunda bekkjar Grundaskóla á Akranesi hóf daginn í dag á vettvangsferð um bæinn sinn þar sem m.a. voru skoðuð listaverk sem standa vítt og dreift um bæinn. Hópurinn átti leið fram hjá skrifstofu Skessuhorns en þar við húshorn stendur einmitt listaverk eftir Grím Marinó. Hópnum var boðið að kíkja í heimsókn á ritstjórnina. Framtíðar…Lesa meira

true

Stýrivextir hækkaðir um tæp 16%

Seðlabankinn tilkynnti í morgun um áttundu hækkun stýrivaxta á rúmu ári. Fara þeir nú úr 4,75% í 5,5%, sem jafngildir 15,79% hækkun eða 0,75 stigum úr prósenti. Stýrivextir hafa ekki verið jafn háir í rúm sex ár. Við tilkynningu um ákvörðun stofnunarinnar talaði seðlabankastjóri skýrt og minnti á að við síðustu hækkun í júní hafi…Lesa meira

true

Framkvæmdir í Grundaskóla í fullum gangi

Ýmsar tilfæringar hafa verið í skólastarfi Grundaskóla á Akranesi síðustu ár þar sem skólinn hefur staðið í miklum endurbótum á byggingum. Gamla stjórnunarálma skólans hefur verið lokuð vegna endurbóta síðan í lok apríl og er verið að breyta henni í kennsluálmu. Vonast er til að hún verði tilbúin í byrjun október og mun 9. bekkur…Lesa meira

true

Hugmynd um sjóböð í Krossavík kynnt fyrir íbúum Hellissands

Umsókn Kára Viðarssonar, leikara og athafnamanns um Sjóböð í Krossavík við Hellissand var eitt þeirra verkefna sem hlaut í sumar styrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Verkefnið hlaut þar hæsta styrk sem veittur var, 3,7 milljónir króna. Áður hafði verkefnið hlotið 500 þúsund króna styrk frá Sóknaráætlun Vesturlands til að vinna viðskiptaáætlun undir leiðsögn Páls Kr. Pálssonar…Lesa meira

true

Grunnskólarnir allir byrjaðir

Frá og með deginum í dag eru allir grunnskólar á Vesturlandi byrjaðir vetrarstarf sitt. Síðasta skólasetningin er í dag í Stykkishólmi. Meðfylgjandi mynd var tekin í gærmorgun í skólastofunni hjá 6. bekk í Brekkubæjarskóla á Akranesi. Þar var lestrartími og krakkarnir áhugasamir að vera byrjaðir.Lesa meira

true

Góð nýting á smáhýsunum á Móum

Segja má að skortur sé á gistiplássi á Akranesi í ljósi þess að ekkert hótel er rekið í þessu tæplega átta þúsund manna samfélagi. Nokkur farfuglaheimili eru rekin í bænum og einnig stök herbergi í heimagistingu. Skammt frá bæjarmörkunum, á Móum í Hvalfjarðarsveit, hefur nú verið fjölgað smáhýsum til útleigu og eru nú sjö talsins.…Lesa meira

true

Tími rifsberjahlaupsins er núna – uppskrift

Nú fer haustið í hönd og margir huga að bústörfunum í því sambandi. Eitt þeirra er berjatínsla. Þótt berjagjafir náttúrunnar séu misgóðar eftir veðurfari er þó venjulegast alltaf hægt að nýta sér rifsber til sultugerðar að hausti. Hér á eftir fylgir uppskrift sem Helga Karlsdóttir í Borgarnesi fylgir í þeim efnum, en rifsberjahlaupið hennar þykir…Lesa meira