Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

Stýrivextir hækkaðir um tæp 16%

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Seðlabankinn tilkynnti í morgun um áttundu hækkun stýrivaxta á rúmu ári. Fara þeir nú úr 4,75% í 5,5%, sem jafngildir 15,79% hækkun eða 0,75 stigum úr prósenti. Stýrivextir hafa ekki verið jafn háir í rúm sex ár.\r\n\r\nVið tilkynningu um ákvörðun stofnunarinnar talaði seðlabankastjóri skýrt og minnti á að við síðustu hækkun í júní hafi hann sagt að vextir yrðu áfram hækkaðir eins oft og þurfa þætti til þess að ná verðbólgu niður. Verðbólga er nú um tíu prósent og hefur ekki verið hærri í þrettán ár. Það er að sjálfsögðu langt yfir 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans sem honum ber samkvæmt lögum um efnahagsstjórn landsins að fara eftir. Húsnæðisverð vegur tæpan helming í hækkun vísitölunnar.\r\n\r\nPeningastefnunefnd Seðlabankans segir að verðbólguhorfur hafi áfram versnað og hún gerir ráð fyrir að verðbólga nái hámarki undir lok árs í tæplega 11%. Það endurspegli kröftugri umsvif í þjóðarbúskapnum en gert var ráð fyrir í vor og þrálátari hækkanir á húsnæðismarkaði auk meiri alþjóðlegrar verðbólgu. Nefndin telur að til þess að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma þurfi að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar. Stefnan muni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Þar skipti ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum miklu um hve hátt vextir þurfa að fara.",
  "innerBlocks": []
}
Stýrivextir hækkaðir um tæp 16% - Skessuhorn