
Í byrjun október á framkvæmdum að vera lokið í gömlu stjórnunarálmunni. Ljósm. vaks
Framkvæmdir í Grundaskóla í fullum gangi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ýmsar tilfæringar hafa verið í skólastarfi Grundaskóla á Akranesi síðustu ár þar sem skólinn hefur staðið í miklum endurbótum á byggingum. Gamla stjórnunarálma skólans hefur verið lokuð vegna endurbóta síðan í lok apríl og er verið að breyta henni í kennsluálmu. Vonast er til að hún verði tilbúin í byrjun október og mun 9. bekkur þá færa sig þangað. Þar til gamla stjórnunarálman verður tilbúin þarf Grundaskóli að leysa sín mál með bráðabirgðalausnum. Þá verður til að mynda útikennsla, kennsla á sal og gangar skólans einnig nýttir.\r\n\r\nÞá er þessa dagana verið að vinna á útisvæði skólans og meðal annars verið að snyrta til við aðalinngang að B-álmu, setja hellur og beð og fjölga hjólastöndum. Því verki átti að ljúka áður en skólinn hófst en þó má búast við að því verki verði ekki að öllu lokið fyrir þann tíma. Þá er unnið af fullum krafti við að gera lausar kennslustofurnar í svokallaðri Eyju tilbúnar fyrir skólabyrjun og það verkefni átti að nást áður en skólinn hefst.\r\n\r\nTil stendur að Grundaskóli fái eftir áramót það húsnæði sem leikskólinn Garðasel er í núna og þarf þá að ráðast í endurbætur á því húsnæði og skólalóðinni. Þar verða líklega kenndar list- og verkgreinar til að byrja með en svo mun frístund Grundaskóla færast þangað.\r\n\r\nAð sögn Sigurðar Arnars Sigurðssonar, skólastjóra Grundaskóla, eru undanfarin ár búin að reynast nemendum og starfsfólki erfið og á köflum þreytandi vegna framkvæmda og þrengsla en á sama tíma hafa allir aðilar sýnt þessu öllu mikla þolinmæði. Framundan eru enn meiri framkvæmdir í elstu byggingu skólans, eða C-álmu eins og hún er kölluð. Sigurður Arnar segir skólasamfélagið sameinast um lokamarkmiðið sem er nýr og glæsilegur Grundaskóli. „Verkefni okkar er að reka öflugt skólastarf og brúa næstu tvö ár með skapandi lausnum eða þar til að fullbúinn, nýr og glæsilegur Grundaskóli lítur dagsins ljós. Þegar sú stund rennur upp lofum við stórhátíð á bæ þar sem skólasamfélagið mun fagna glæsilegri uppskeru.“",
"innerBlocks": []
}