Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri og Róbert Aron Róbertsson frá Festi við undirritun samningsins í Brákarey. Eyjan heitir fullu nafni Stóra Brákarey og þangað hefur legið brú af fastalandinu síðan um 1930. Ljósm. gj.

Festir annast rammaskipulag fyrir Brákarey

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær staðfesti Borgarbyggð samning við fasteignaþróunarfélagið Festi og JVST arkítekta um gerð rammaskipulags fyrir Brákarey í Borgarnesi. Á fundi byggðarráðs 28. júlí síðastliðinn kom fram að þessir aðilar hefðu lýst áhuga á því að leiða vinnu við heildarskipulag í Brákarey í samstarfi við bæjaryfirvöld og lagði sveitarstjóri í framhaldinu fram drög að samningi sem nú var verið að undirrita.\r\n\r\nAf hálfu sveitarstjórnar er áhersla lögð á samráð við íbúa og hagsmunaaðila og væntingar eru til þess að í Brákarey verði blönduð byggð og starfsemi sem muni laða að sér mannlíf og auka lífsgæði íbúa. Samningsaðilar eru sammála um þetta.\r\n\r\nÍ samningnum er kveðið á um að Festir muni leiða og jafnframt kosta þá vinnu sem framundan er við skipulagið. Festir hefur ráðið JVST arkitekta til samstarfs um þessa skipulagsvinnu.Tekið er fram að samkomulag þetta felur ekki í sér að Borgarbyggð teljist á neinn hátt skuldbundin af þeim tillögum sem lagðar verða fram.\r\n\r\nSamkvæmt samningnum hefur tímalína verið útbúin og miða skal við hana hvað verkefnið varðar. Vinnuhópur fundar með arkitektum á tveggja vikna fresti á næstunni og gert er ráð fyrir tveimur samráðsfundum með hagsmunaaðilum og íbúum, öðrum í september og hinum í nóvember. Gert er svo ráð fyrir að vinnunni ljúki í desember með kynningu fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar.\r\n\r\n<strong>Áhugaverðasta þróunarverkefnið</strong>\r\n\r\n„Brákarey er um fimm hektarar að stærð og er tengd Borgarnesi með brú. Eyjan hefur verið samofin atvinnusögu Borgarness og Borgarfjarðarhéraðs alla tíð og Brákarsund milli Brákareyjar og Borgarness var vettvangur eins þekktasta atburðar Egils sögu. Á árum áður voru í Brákarey sumir stærstu vinnustaðir Borgarness; sláturhús, verkstæði, verslun og iðnaður. Óhætt er að segja að Brákarey sé eitt áhugaverðasta fasteignaþróunarverkefni landsins. Þar fer saman mikil saga, náttúra og útsýni. Þá er eyjan hluti af gamla bæ Borgarness þar sem síðustu ár veruleg uppbygging hefur átt sér stað og veitingastarfsemi og menningarlíf eflst. Það er tilhlökkunarefni að sjá nú fram á að Brákarey endurheimti fyrri sess sem kjarni mannlífs, atvinnulífs og menningar í Borgarbyggð en í samkomulaginu er miðað við að í Brákarey verði blönduð byggð og starfsemi sem muni laða að sér mannlíf og auka lífsgæði íbúa,“ segir Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri.\r\n\r\n<strong>Hvað er Festir?</strong>\r\n\r\nFestir er fasteignaþróunarfélag stofnað af Ólafi Ólafssyni og Ingibjörgu Kristjánsdóttur. Meginmarkmið þess er að þróa fasteignir og lóðir, ýmist með sölu eða rekstur í huga. Félagið hefur m.a. haft með uppbyggingu á Héðinsreitnum við Granda í Reykjavík að gera og er það einnig unnið í samstarfi við JVST arkitekta.\r\n\r\nHollensk-íslenska arkitektastofan JVST í Rotterdam var stofnuð árið 2012 undir heitinu jvantspijker. Í framhaldi af verkefnum hér á landi opnaði hún útibú á Íslandi fyrr á árinu og er Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt og umhverfisfræðingur framkvæmdastjóri þess. Einnig starfar Orri Steinarsson arkitekt á stofunni, en hann hóf þar störf árið 2018 og sinnir verkefnum hér á landi og í Hollandi jöfnum höndum. JVST hefur vakið athygli fyrir verðlaunatillögur að skipulagi byggðar og á það einnig við hér á landi, svo sem fyrir Héðinsreit og Vogabyggð í Reykjavík.",
  "innerBlocks": []
}