
Loðnurannsóknir hefjast af krafti í haust. Grænlendingar og Íslendingar taka höndum saman við rannsóknirnar, en samið hefur verið um að hið nýja grænlenska rannsóknaskip Tarajoq, haldi til loðnurannsókna á laugardaginn. Um borð verða meðal annars sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson mun svo koma til liðs við leiðangurinn 5. september í þessari sameiginlegu loðnurannsókn þjóðanna.…Lesa meira








