
Fjöldi athugasemda hafa borist við fyrirætlanir fyrirtækisins Zephyr Iceland um byggingu vindorkuvers á Brekkukambi í Hvalfirði. Í gær fékk sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar afhent mótmæli sem 1709 manns hafa undirritað. Eru það íbúar, sumarhúsaeigendur og aðrir velunnarar sveitarinnar. Fram kom við afhendingu mótmælanna að vilji stendur til þess að vita persónulega afstöðu einstakra sveitarstjórnarmanna til málsins. Einnig…Lesa meira








