Árni Jónsson mun kenna nemendum að nota hljóðver í Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hljóðverið er ennþá í uppsetningu og opið er fyrir skráningar í kúrsinn. Ljósm. sþ.

Stúdíó í Tónlistarskóla Borgarfjarðar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skólar á öllum námsstigum eru nú að hefja vetrarstarfið. Meðal annars er Tónlistarskóli Borgarfjarðar að hefja nýja önn með nýstárlegum námsleiðum. Sigfríður Björnsdóttir tónlistarskólastjóri segist í samtali við Skessuhorn spennt að taka á móti nemendum haustsins. ,,Við erum sérstaklega spennt að hefja nýja önn og taka við nýjum og gömlum nemendum á öllum aldri. Við hvetjum sérstaklega táninga og fullorðna til að koma, hvort sem þau vilja hefja nýtt nám eða taka upp fyrra nám. Við erum líka alltaf opin fyrir nýjum hugmyndum,“ segir Sigfríður.\r\n\r\nSkólinn hefur verið í nokkurs konar umbreytingarferli síðastliðið ár og mun nú t.d. byrja að kenna nemendum á hljóðver. Árni Jónsson mun kenna áfangann en hann lærði upptökustjórnun í Listaháskóla Íslands. ,,Þetta er tilraunaáfangi og við erum bara að taka fyrstu skrefin. Við byrjum með lítinn bekk og kúrsinn verður svolítið sniðinn að því sem nemendurnir í kúrsinum vilja gera en annars verður þetta smá samsuða af því sem ég hef verið að læra sjálfur. Við kennum kannski minna á upptökur til að byrja með og meira á pródúseringu. Þá erum við að læra að nota forrit sem hljóðfæri, það er það sem nútíma pródúsering snýst helst um, að nota tölvuna og forritin til að búa til hljóð en kannski síður að taka upp hljóð. Ég mun þá nota ProTools til þess og sýni hvernig þetta virkar en ef nemendur eru að nota önnur forrit er það allt í góðu. Við vinnum mögulega einnig með fundin hljóð og lærum að nota þau í ýmislegt þannig að þetta verður bara fjölbreytt og skemmtilegt,“ segir Árni.",
  "innerBlocks": []
}
Stúdíó í Tónlistarskóla Borgarfjarðar - Skessuhorn