Hér er sko áhersla lögð á orðin. Ljósm. af.

Það er nógur fiskur í sjónum þótt Hafró finni hann ekki

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var kraftur í skipverjunum á dragnótarbátnum Rifsara SH þegar þeir voru að setja ný tóg um borð og eftirvæntingin leyndi sér ekki að hefja veiðar á komandi kvótaári. En skipsverjar bíða nú til 1. september með að hefja veiðarnar. Þeir segja að það sé fiskur út um allan sjó þrátt fyrir kvótaskerðingu sem þeir skilja bara ekkert í. „Það sé nóg af fiski í hafinu þótt Hafró finni hann ekki,“ segja þeir.\r\n\r\nÚtgerðarmenn hafa notað sumarfríið til þess að dytta að bátum sínum og gera þá klára fyrir komandi vertíð og fiskvinnslur eru búnar að setja sig í stellingar að vinna fiskinn sem komið verður með að landi. Þá fara hjól atvinnulífsins að snúast að nýju.",
  "innerBlocks": []
}
Það er nógur fiskur í sjónum þótt Hafró finni hann ekki - Skessuhorn