Fréttir

true

Skagakonum skellt af Gróttu

Grótta og ÍA mættust á föstudaginn í 2. deild kvenna í knattspyrnu og var leikurinn á Seltjarnarnesi. Fyrir leik munaði fimm stigum á liðunum, Grótta var í öðru sæti með 17 stig og ÍA með tólf í því fimmta og því afar mikilvægur leikur í toppbaráttunni. Leikurinn byrjaði vel fyrir Skagakonur því á 16. mínútu…Lesa meira

true

Víkingur Ó tapaði fyrir Völsungi

Völsungur og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á PCC vellinum á Húsavík. Leikurinn byrjaði ekki gæfulega fyrir gestina því á 19. mínútu varð Emmanuel Eli Keke fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Heimamenn létu síðan kné fylgja kviði fimm mínútum fyrir hálfleikshléið þegar Áki Sölvason…Lesa meira

true

Borgfirðingar fjölmenntu á púttmót

Open-púttmótið fór fram á Hvammstanga síðastliðinn föstudag. Þátttaka var dræm en um 20 keppendur mættu til leiks. Voru 16 þátttakendur frá Borgarnesi, einn frá Akranesi og þrír frá Hvammstanga. Í kvennaflokki sigraði Guðrún Birna Haraldsdóttir frá Borgarnesi og í karlaflokki sigraði Páll Sigurðsson frá Hvammstanga. Elvar Ísak Jessen sigraði drengjaflokkinn en hann er frá Akranesi.…Lesa meira

true

Reynir Hellissandi með stórsigur á móti Herði Ísafirði

Eftir að hafa tapað fyrstu tíu leikjum sínum í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í sumar náði Reynir Hellissandi loksins að landa þremur stigum í hús. Til að kóróna það skoruðu þeir ellefu mörk gegn fjórum á móti Herði frá Ísafirði í sínum ellefta leik í deildinni. Það var ekki rigning á laugardaginn…Lesa meira

true

Ný stjórn kosin yfir Höfða á Akranesi

Á fundi stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akrnesi, sem var haldinn 27. júní, kom fram að eftirtaldir hafa verið kjörnir í stjórn Höfða: Aðalmenn eru Einar Brandsson formaður, Björn Guðmundsson varaformaður og Elsa Lára Arnardóttir. Varamenn eru Ragnheiður Helgadóttir, Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Liv Åse  Skarstad. Frá Hvalfjarðarsveit var Helgi Pétur Ottesen kjörinn aðalmaður…Lesa meira

true

Banaslys á Akrafjallsvegi

Karlmaður lést í bílveltu á Akrafjallsvegi, ofan við bæinn Heynes, í gærkvöldi. Lögreglan á Vesturlandi fer yfir tildrög slyssins í tilkynningu sem hún var að senda frá sér. Þar segir: “Um kl. 19:00 föstudaginn 22. júlí barst lögreglu tilkynning frá vegfarendum um rásandi aksturslag bifreiðar í Hvalfjarðargöngunum á leið vestur.“ Lögreglumenn frá Akranesi fóru í…Lesa meira

true

Íslandsmót barna og unglinga í undirbúningi í Borgarnesi

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum mun fara fram í Borgarnesi á félagssvæði hestamannafélagsins Borgfirðings 3.-6. ágúst næstkomandi. Skráningafrestur fyrir mótið rennur út á þriðjudaginn næstkomandi. Í barnaflokki verður keppt í fimi, töltgreinum og fjórgangi. Og í unglingaflokki verður keppt í fimi, töltgreinum, fjórgangi, fimmgangi og skeiðgreinum.Lesa meira

true

Tríó Reynis spilar í Hallgrímskirkju

Tríó Reynis Haukssonar flytur íslenska tónlist í flamenco búningi á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 24. júlí kl. 16. Tríó Reynis er skipað Reyni Haukssyni á flamenco gítar, Einari Scheving á slagverk og Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa. Útgangspunktur tríósins er íslensk tónlist í flamenco búningi. Reynir hefur búið á Spáni síðustu árin þar…Lesa meira

true

Hinseginhátíð Vesturlands hefst í dag í Snæfellsbæ

Undirbúningur fyrir Hinseginhátíð Vesturlands sem haldin verður í Snæfellsbæ um helgina er nú á lokastigi. Þau voru orðin ansi spennt skipuleggjendur hátíðarinnar þegar fréttaritari Skessuhorns kom við hjá þeim í Regnbogabúð Hinsegin Vesturlands í gær á opnunardeginum. Búðin er staðsett í Átthagastofu í Ólafsvík. Þar má kaupa ýmis konar regnbogavarning til styrktar félaginu. Búðin var…Lesa meira

true

Flögguðu regnbogafánum á Akranesi

Í morgun tók Vinnuskólinn á Akranesi þátt í að flagga regnbogafánanum á Akratorgi og við Stillholt. Í leiðinni fengu ungmennin fræðslu um það að vera hinsegin og hvernig litirnir í regnbogafánanum tákna fjölbreytileikann.Lesa meira