{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akrnesi, sem var haldinn 27. júní, kom fram að eftirtaldir hafa verið kjörnir í stjórn Höfða: Aðalmenn eru Einar Brandsson formaður, Björn Guðmundsson varaformaður og Elsa Lára Arnardóttir. Varamenn eru Ragnheiður Helgadóttir, Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Liv Åse Skarstad. Frá Hvalfjarðarsveit var Helgi Pétur Ottesen kjörinn aðalmaður og Helga Harðardóttir varamaður. Nýr fulltrúi starfsmanna sem kjörin var á aðalfundi starfsmannafélags er Aldís Þorbjörnsdóttir.\r\n\r\nFram kom á fundinum varðandi vistunarmál að alls eru 27 einstaklingar á biðlista fyrir hjúkrunarrými, 14 á biðlista fyrir dvalarrými og 27 einstaklingar á biðlista fyrir hvíldarinnlögn. Þá samþykkti stjórn Höfða framlagða tillögu framkvæmdastjóra um nýja gjaldskrá fyrir verð á útseldu fæði frá Höfða. Verð á máltíð hækkar úr 1.172 krónum í 1.246 krónur eða um 6,3% og tók hækkunin gildi 1. júlí sl.\r\n\r\nStjórn Höfða samþykkti að fela núverandi framkvæmdastjórn að láta vinna kostnaðaráætlun sem undanfara umsóknar í Framkvæmdasjóð aldraðra árið 2023 vegna endurnýjunar á þak- og veggjaklæðningu í 2. áfanga Höfða og í framhaldi af því útboðsgögn. Í lok fundarins samþykkti stjórn Höfða styrk vegna árshátíðar Höfða að fjárhæð sex hundruð þúsund krónur.",
"innerBlocks": []
}
Ný stjórn kosin yfir Höfða á Akranesi - Skessuhorn