Banaslys á Akrafjallsvegi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Karlmaður lést í bílveltu á Akrafjallsvegi, ofan við bæinn Heynes, í gærkvöldi. Lögreglan á Vesturlandi fer yfir tildrög slyssins í tilkynningu sem hún var að senda frá sér. Þar segir:\r\n\r\n\"Um kl. 19:00 föstudaginn 22. júlí barst lögreglu tilkynning frá vegfarendum um rásandi aksturslag bifreiðar í Hvalfjarðargöngunum á leið vestur.“ Lögreglumenn frá Akranesi fóru í átt að göngunum til þess að kanna með ökumann þessa ökutækis. „Á leið sinni að Hvalfjarðargöngum mættu þeir bifreiðinni á Akrafjallsvegi. Lögreglumenn snéru við og hugðust stöðva akstur ökumanns og kanna ástand hans en þá hafði hann sýnilega þegar aukið ferðina verulaga og langur vegur á milli bifreiðar hans og lögreglumanna. Ökumaður ók síðan fram úr strætisvagni á ógnarhraða, að sögn vitna, og fyrir framan strætisvagninn á miðjum Akrafjallsvegi virðist ökumaður hafa misst stjórn á bifreiðinni og hafnaði utan vegar. Bifreiðin fór nokkarar veltur að sögn vitna í strætisvagninum og virðist sem ökumaður hafi kastast út úr bifreiðinni við það. Endurlífgun lögreglu og sjúkraliðs sem kom á vettvang bar ekki árangur.“\r\n\r\nRannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi rannsakar slysið og nýtur aðstoðar tæknideildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom sömuleiðis á vettvang.",
  "innerBlocks": []
}
Banaslys á Akrafjallsvegi - Skessuhorn