Frá vinstri: Bjargey Anna Guðbrandsdóttir framkvæmdastýra hátíðarinnar, Ingvar Breiðfjörð Skúlason gjaldkeri Hinsegin Vesturlands, Guðrún St. Guðbrandsdóttir forseti Hinsegin Vesturlands og Alexander Aron Guðjónsson kynningarfulltrúi Hinsegin Vesturlands. Ljósm. af

Hinseginhátíð Vesturlands hefst í dag í Snæfellsbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undirbúningur fyrir Hinseginhátíð Vesturlands sem haldin verður í Snæfellsbæ um helgina er nú á lokastigi. Þau voru orðin ansi spennt skipuleggjendur hátíðarinnar þegar fréttaritari Skessuhorns kom við hjá þeim í Regnbogabúð Hinsegin Vesturlands í gær á opnunardeginum. Búðin er staðsett í Átthagastofu í Ólafsvík. Þar má kaupa ýmis konar regnbogavarning til styrktar félaginu. Búðin var opnuð klukkan tíu í morgun og verður opin til klukkan 18 í dag en á morgun flytur hún í Kaldalæk í Sjómannagarðinum.\r\n\r\nÞetta er önnur hátíð félagsins en fyrsta Hinseginhátíð Vesturlands var haldin í Borgarnesi í fyrra með miklum glæsibrag. Hinseginhátíðin er farandhátíð sem flakkar á milli sveitarfélaganna á Vesturlandi til að auka sýnileika hinsegin fólks um allan landshlutann. Fólk um allt Vesturland bíður því spennt eftir að heyra hvar þriðja hinseginhátíðin verður á næsta ári en það verður ekki tilkynnt fyrr en á laugardag.\r\n\r\nSystur verða með tónleika í Frystiklefanum í Rifi í kvöld en þetta eru fyrstu opinberu tónleikar þeirra eftir þátttökuna í Eurovision. Síðar um kvöldið er svo stórdansleikur með Páli Óskari á Góðri stund í Grundarfirði og verða sætaferðir úr Ólafsvík.\r\n\r\nHápunktur helgarinnar er gleðiganga í Ólafsvík sem verður á morgun laugardaginn 23. júlí klukkan 14 og verður gengið eftir Ólafsbraut og upp Kirkjutún sem er nýjasta regnbogagata landsins. Í kjölfarið er skemmtidagskrá í Sjómannagarðinum, hoppukastalar, sölutjöld og fleira skemmtilegt víða í bænum. Systur, þær Sigga, Beta og Elín eru meðal þeirra sem koma fram, auk hljómsveitarinnar Evu og hæfileikafólks af Vesturlandi. Dragdrottningin Miss Agatha P. sér um að kynna dagskrána en kvöldinu lýkur með Queer AF Diskó með DJ Alexander Aron. Um morguninn er regnbogakrossfit í Rifi og á sunnudeginum endar fjörið með regnbogasundlaugardiskói í sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík.\r\n\r\nMikil stemming er að skapast í Snæfellsbæ og samstarfið við bæjarfélagið hefur gengið afskaplega vel, regnbogagatan er strax farin að vekja athygli og fánar blakta um allan bæ og víðar á Vesturlandi.",
  "innerBlocks": []
}
Hinseginhátíð Vesturlands hefst í dag í Snæfellsbæ - Skessuhorn