Tríó Reynis spilar í Hallgrímskirkju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Tríó Reynis Haukssonar flytur íslenska tónlist í flamenco búningi á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 24. júlí kl. 16. Tríó Reynis er skipað Reyni Haukssyni á flamenco gítar, Einari Scheving á slagverk og Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa.\r\n\r\nÚtgangspunktur tríósins er íslensk tónlist í flamenco búningi. Reynir hefur búið á Spáni síðustu árin þar sem hann hefur starfað sem flamenco gítarleikari og hefur útsett mörg íslensk lög fyrir flamenco gítar. Einar Scheving trommu- og slagverksleikari hefur komið víða við, bæði á tónleikum og leikið inn á ýmsar plötur síðustu áratugina. Birgir Steinn er einn eftirsóttasti kontrabassaleikari landsins en hann lauk námi frá hinum virta Hans Eisler tónlistarskóla fyrir nokkrum árum síðan.\r\n\r\nÞetta er fjórða tónleikaárið að Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hvalfirði en grunnhugmynd tónleikanna, sem haldnir verða í kirkjunni sjálfri, er að viðhalda staðnum sem menningarstað og mun hann með tímanum vonandi verða aðdráttarafl fyrir landsmenn sem og erlenda ferðamenn.\r\n\r\nAðgangseyrir er 3.000 kr. og eru allir velkomnir.\r\n\r\n<em>-fréttatilk</em>",
  "innerBlocks": []
}
Tríó Reynis spilar í Hallgrímskirkju - Skessuhorn