Fréttir

true

Hinseginhátíð Vesturlands á Akranesi 2023

Síðastliðna helgi fór Hinseginhátíð Vesturlands fram í Ólafsvík með tilheyrandi skrúðgöngu, skemmtiatriðum og stemmningu. Á hátíðinni var tilkynnt að næsta staðsetning hátíðarinnar yrði á Akranesi að ári. Hátíðin fór fyrst fram á síðasta ári, 2021, þá í Borgarnesi.Lesa meira

true

Ráðherra boðar frumvarp um skiptingu aflakvóta

Fyrir helgi lauk strandveiðum þegar kvótinn kláraðist langt umfram heimilaðan veiðitíma. Var þetta fyrr en nokkru sinni áður þó leyfilegur afli hafi einnig verið hærri en nokkru sinni fyrr. Gerði þetta að verkum að mismikill afli kom í hlut hvers svæðis fyrir sig. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir í pistli sínum sem hún birti í Morgunblaðinu…Lesa meira

true

Landhelgisgæslan sinnti útkalli við Glym

Rétt fyrir klukkan fjögur í gær var leitast eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar við útkall við fossinn Glym í Hvalfirði. Kona hafði ökklabrotnað á óheppilegum stað þar sem aðgengi var erfitt og illa gekk að bera konuna niður. Konan var sótt með þyrlu og flutt á sjúkrahús til viðeigandi aðhlynningar.Lesa meira

true

Skagakonum skellt af Gróttu

Grótta og ÍA mættust á föstudaginn í 2. deild kvenna í knattspyrnu og var leikurinn á Seltjarnarnesi. Fyrir leik munaði fimm stigum á liðunum, Grótta var í öðru sæti með 17 stig og ÍA með tólf í því fimmta og því afar mikilvægur leikur í toppbaráttunni. Leikurinn byrjaði vel fyrir Skagakonur því á 16. mínútu…Lesa meira

true

Víkingur Ó tapaði fyrir Völsungi

Völsungur og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á PCC vellinum á Húsavík. Leikurinn byrjaði ekki gæfulega fyrir gestina því á 19. mínútu varð Emmanuel Eli Keke fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Heimamenn létu síðan kné fylgja kviði fimm mínútum fyrir hálfleikshléið þegar Áki Sölvason…Lesa meira

true

Borgfirðingar fjölmenntu á púttmót

Open-púttmótið fór fram á Hvammstanga síðastliðinn föstudag. Þátttaka var dræm en um 20 keppendur mættu til leiks. Voru 16 þátttakendur frá Borgarnesi, einn frá Akranesi og þrír frá Hvammstanga. Í kvennaflokki sigraði Guðrún Birna Haraldsdóttir frá Borgarnesi og í karlaflokki sigraði Páll Sigurðsson frá Hvammstanga. Elvar Ísak Jessen sigraði drengjaflokkinn en hann er frá Akranesi.…Lesa meira

true

Reynir Hellissandi með stórsigur á móti Herði Ísafirði

Eftir að hafa tapað fyrstu tíu leikjum sínum í A riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í sumar náði Reynir Hellissandi loksins að landa þremur stigum í hús. Til að kóróna það skoruðu þeir ellefu mörk gegn fjórum á móti Herði frá Ísafirði í sínum ellefta leik í deildinni. Það var ekki rigning á laugardaginn…Lesa meira

true

Ný stjórn kosin yfir Höfða á Akranesi

Á fundi stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akrnesi, sem var haldinn 27. júní, kom fram að eftirtaldir hafa verið kjörnir í stjórn Höfða: Aðalmenn eru Einar Brandsson formaður, Björn Guðmundsson varaformaður og Elsa Lára Arnardóttir. Varamenn eru Ragnheiður Helgadóttir, Jónína Margrét Sigmundsdóttir og Liv Åse  Skarstad. Frá Hvalfjarðarsveit var Helgi Pétur Ottesen kjörinn aðalmaður…Lesa meira

true

Banaslys á Akrafjallsvegi

Karlmaður lést í bílveltu á Akrafjallsvegi, ofan við bæinn Heynes, í gærkvöldi. Lögreglan á Vesturlandi fer yfir tildrög slyssins í tilkynningu sem hún var að senda frá sér. Þar segir: “Um kl. 19:00 föstudaginn 22. júlí barst lögreglu tilkynning frá vegfarendum um rásandi aksturslag bifreiðar í Hvalfjarðargöngunum á leið vestur.“ Lögreglumenn frá Akranesi fóru í…Lesa meira

true

Íslandsmót barna og unglinga í undirbúningi í Borgarnesi

Íslandsmót barna og unglinga í hestaíþróttum mun fara fram í Borgarnesi á félagssvæði hestamannafélagsins Borgfirðings 3.-6. ágúst næstkomandi. Skráningafrestur fyrir mótið rennur út á þriðjudaginn næstkomandi. Í barnaflokki verður keppt í fimi, töltgreinum og fjórgangi. Og í unglingaflokki verður keppt í fimi, töltgreinum, fjórgangi, fimmgangi og skeiðgreinum.Lesa meira