Fréttir

true

Tríó Reynis spilar í Hallgrímskirkju

Tríó Reynis Haukssonar flytur íslenska tónlist í flamenco búningi á sumartónleikum í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 24. júlí kl. 16. Tríó Reynis er skipað Reyni Haukssyni á flamenco gítar, Einari Scheving á slagverk og Birgi Steini Theódórssyni á kontrabassa. Útgangspunktur tríósins er íslensk tónlist í flamenco búningi. Reynir hefur búið á Spáni síðustu árin þar…Lesa meira

true

Hinseginhátíð Vesturlands hefst í dag í Snæfellsbæ

Undirbúningur fyrir Hinseginhátíð Vesturlands sem haldin verður í Snæfellsbæ um helgina er nú á lokastigi. Þau voru orðin ansi spennt skipuleggjendur hátíðarinnar þegar fréttaritari Skessuhorns kom við hjá þeim í Regnbogabúð Hinsegin Vesturlands í gær á opnunardeginum. Búðin er staðsett í Átthagastofu í Ólafsvík. Þar má kaupa ýmis konar regnbogavarning til styrktar félaginu. Búðin var…Lesa meira

true

Flögguðu regnbogafánum á Akranesi

Í morgun tók Vinnuskólinn á Akranesi þátt í að flagga regnbogafánanum á Akratorgi og við Stillholt. Í leiðinni fengu ungmennin fræðslu um það að vera hinsegin og hvernig litirnir í regnbogafánanum tákna fjölbreytileikann.Lesa meira

true

Staðfesta veiruskitu í kúm hér á landi

Tilraunastöð HÍ að Keldum hefur staðfest að landlæg veiruskita í kúm hér á landi er af völdum Bovine coronavirus, BovCoV. „Síðla vetrar og í vor var veiruskita að ganga á kúabúum víða um land, þó aðallega á Norðurlandi. Tekin var nokkur fjöldi sýna og var greiningu þeirra að ljúka. Lengi hefur verið grunur um að…Lesa meira

true

Strandveiðum sumarsins lokið

Síðasti dagur strandveiða var í gær en þá fylltist kvóti sumarsins. Fiskistofa stöðvaði því veiðarnar formlega og féllu strandveiðileyfi úr gildi frá og með deginum í dag. Heimilt er að halda til veiða á grundvelli almenns veiðileyfis á morgun, laugardaginn 23. júlí. Veiðarnar í sumar gengu vel og af þeim sökum fylltist kvótinn snemma þrátt…Lesa meira

true

Styttist í að nýr vegur um Kleifarnar verði fullbúinn

Nú er verktakafyrirtækið Borgarverk langt komið með framkvæmdir við uppbyggingu og breytingar á Þverárhlíðarvegi númer 522 í Borgarfirði. Verkið er eitt af þeim stærri í vegagerð í landshlutum á þessu ári. Framkvæmdasvæðið er frá gatnamótum þjóðvegarins ofan við Kljáfoss í Hvítársíðu og að Högnastöðum í Þverárhlíð. Nýr vegur er hálfur níundi kílómetri að lengd og…Lesa meira

true

Sendir málverk til tunglsins

Listakonan Michelle Bird býr í Borgarnesi. Málverk eftir hana hefur verið valið til þess að vera í hópi fjölmargra listaverka sem send eru til tunglsins á vegum verkefnisins Lunar Codex. Michelle málaði verkið sem nú fer á ferðalag ásamt listamanninum Mike Albrow sem er búsettur í Sviss. Lunar Codex er verkefni sem sendir listaverk eftir…Lesa meira

true

Fór á hestbaki til Fíu langömmu

Hún Ástdís Telma Friðriksdóttir, sem á átta ára afmæli í dag, fékk langþráðan draum uppfylltan um síðustu helgi. Þá fékk hún að fara með Láru Gísladóttur, ömmu sinni á Stóra-Ási, á hestum í heimsókn til Kristfríðar Björnsdóttur langömmu sinnar sem býr á Uppsölum í sömu sveit. Eðlilega var þetta mikið ævintýri. Eftir útreiðar í grenjandi…Lesa meira

true

Strandveiðar gætu klárast í dag

Líkur eru á að veiðiheimildir strandveiða klárist í dag. Strandveiðiflotinn hefur síðastliðnar vikur veitt meira en nokkru sinni fyrr en veiðarnar hafa gefið óvenju vel af sér þetta sumarið. Mikil gagnrýni hefur verið á kvótakerfið síðustu vikur þar sem um mánuður er eftir af veiðitímabilinu. Margir krefjast meiri kvóta eða aflaheimildir til að koma í…Lesa meira

true

Þórdís Sif ráðin nýr bæjarstjóri Vesturbyggðar

Fyrrum sveitarstjóri Borgarbyggðar, Þórdís Sif Sigurðardóttir, hefur verið ráðin í stöðu bæjarstjóra Vesturbyggðar. Ráðningin verður staðfest á næsta fundi bæjarráðs, gangi allt eftir og mun þá ráðningin taka formlega gildi. Þórdís starfaði sem sveitarstjóri Borgarbyggðar 2020-2022 og sem bæjarritari og staðgengill bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar 2013-2020. Sveitarfélagið Vesturbyggð er staðsett á sunnanverðum Vestfjörðum, nánar tiltekið frá Arnarfirði…Lesa meira