
Daníel Guðbjartsson á Sigurey ÍS 46 frá Súðavík var ánægður með sinn gang á strandveiðunum í sumar. Hann var jafnframt feginn því að komast í smá frí. Fréttaritari Skessuhorns hitti hann að máli þegar hann var að landa síðasta afla sumarsins í gær. Ljósm. af.
Strandveiðum sumarsins lokið
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðasti dagur strandveiða var í gær en þá fylltist kvóti sumarsins. Fiskistofa stöðvaði því veiðarnar formlega og féllu strandveiðileyfi úr gildi frá og með deginum í dag. Heimilt er að halda til veiða á grundvelli almenns veiðileyfis á morgun, laugardaginn 23. júlí.\r\n\r\nVeiðarnar í sumar gengu vel og af þeim sökum fylltist kvótinn snemma þrátt fyrir að matvælaráðherra hafi bætt rúmum þúsund tonnum við kvótann. Töluverð gagnrýni hefur verið á strandveiðikerfið síðustu vikur þar sem rúmur mánuður er enn eftir af veiðitímabilinu, en sjómönnum þó gert að fara í land þegar allur ágústmánuður er eftir. Verst fara sjómenn á svæði C út úr þessu fyrirkomulagi því besti veiðitíminn norðan við landið er alla jafnan síðsumars. Margir hafa krafist þess að meiri kvóta yrði úthlutað, enda hafa veiðarnar sýnt að vera sem vítamínsprauta í mörg byggðarlög sem eiga undir högg að sækja. Meðal annars hefur Landssamband smábátasjómanna bent á þetta. Góð aflabrögð framan af sumri sunnan- og vestan við landið koma þó í veg fyrir það. Af þeim sökum hefur matvælaráðherra viðrað þá hugmynd að koma aftur á svæðaskiptingu kvóta og verður án efa tekist á um það á Alþingi í haust.\r\n\r\nÓhætt er að segja að veiðarnar á þessu sumri hafi gengið vel, en um 660 bátar hafa stundað þær síðan í maí. Mestur fjöldi báta var á svæði A, sem nær frá Snæfellsnesi að Vestfjörðum. Aflabrögð á öðrum svæðum hefur verið best á svæði D sem er frá Hornafirði, suður um og að Akranesi en á því svæði eru stærstu löndunarhafnir Hornafjörður og Sandgerði. Mestu var landað af ufsa á svæði D þar sem aflahæstu bátarnir í sumar réru, en það voru Dögg SF og Nökkvi ÁR. Verð á ufsa á fiskmörkuðum hefur haldist mjög gott í sumar og hefur það hjálpað strandveiðisjómönnum mikið, enda mega þeir landa öllum þeim ufsa sem þeir fá á krókana og skerðir það ekki kvótann í þorski.",
"innerBlocks": []
}