Um Kleifarnar blasir nú við nýtt landslag eins og sjá má á þessari mynd sem tekin var í gær. Klettaranar sem áður var sveigt í kringum hafa verið teknir niður og efnið úr þeim mulið sem burðarlag í nýjan veg. Ljósm. mm

Styttist í að nýr vegur um Kleifarnar verði fullbúinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú er verktakafyrirtækið Borgarverk langt komið með framkvæmdir við uppbyggingu og breytingar á Þverárhlíðarvegi númer 522 í Borgarfirði. Verkið er eitt af þeim stærri í vegagerð í landshlutum á þessu ári. Framkvæmdasvæðið er frá gatnamótum þjóðvegarins ofan við Kljáfoss í Hvítársíðu og að Högnastöðum í Þverárhlíð. Nýr vegur er hálfur níundi kílómetri að lengd og 6,3 metrar á breidd byggður samkvæmt nýjustu stöðlum. Hann er að mestu leyti lagður í gamla vegstæðinu en mestar breytingar á veginum eru þar sem vegstæðið fer yfir Kleifarnar, þar sem vegurinn liggur hæst í landinu á móts við afleggjarann að Sleggjulæk og Ásbjarnarstöðum. Gamli vegurinn lá þar í sveigum og skorningum milli kletta sem nú hafa verið teknir niður að stórum hluta, grjótið úr þeim unnið og það notað í fyllingar og burðarlag nýja vegarins. Uppbyggingu vegarins er nú að ljúka og frágangi samkvæmt útboðinu í haust.",
  "innerBlocks": []
}
Styttist í að nýr vegur um Kleifarnar verði fullbúinn - Skessuhorn