Ráðherra boðar frumvarp um skiptingu aflakvóta

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir helgi lauk strandveiðum þegar kvótinn kláraðist langt umfram heimilaðan veiðitíma. Var þetta fyrr en nokkru sinni áður þó leyfilegur afli hafi einnig verið hærri en nokkru sinni fyrr. Gerði þetta að verkum að mismikill afli kom í hlut hvers svæðis fyrir sig. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra segir í pistli sínum sem hún birti í Morgunblaðinu í dag að hún hyggist leggja fram frumvarp í vetur þar sem aflanum yrði hlutfallslega skipt niður á svæði í kringum landið. Svandís vill með þessu jafna hlut hvers og eins svo aflinn skiptist ekki ójafnt og taka tillit til fiskgengdar. Hún segir fiskgengd misjafna milli landsvæða svo réttast sé að skipta aflapottinum upp og tryggja að óréttlæti eins og átti sér stað í sumar komi ekki upp aftur.",
  "innerBlocks": []
}
Ráðherra boðar frumvarp um skiptingu aflakvóta - Skessuhorn