Fréttir

true

Samira Suleman til ÍA

ÍA sem leikur í 2. deild kvenna í knattspyrnu hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í baráttunni um að komast aftur upp í Lengjudeild kvenna. Sóknarmaðurinn Samira Suleman sem er fædd árið 1991 hefur gengið til liðs við Skagakonur frá Sindra. Samira hefur skorað sjö mörk úr átta leikjum fyrir Sindra í ár sem…Lesa meira

true

Tæplega 60 þúsund erlendir ríkisborgarar

Í byrjun þessa mánaðar voru 59.105 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi og fjölgaði þeim um 4.126 frá 1. desember á liðnu ári, eða um 7,5%. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 490% frá 1. desember sl. og voru 1. júlí sl. 1.410 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara…Lesa meira

true

Vilja stækka kirkjugarðinn á Akranesi

Á fundi bæjarráðs Akraness 14. júlí síðastliðinn var tekið fyrir erindi forsvarsmanna Akranessóknar vegna stækkunar kirkjugarðsins í Görðum á Akranesi. Undir erindinu „Lóð fyrir nýjan kirkjugarð“ segir: „Eins og kunnugt er var kirkjugarðurinn stækkaður á síðasta áratug og nýi hlutinn tekinn í notkun haustið 2020. Jarðsetningum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár. Núna er reiknað með…Lesa meira

true

Vel var mætt á Ólafsdalshátíð

Ólafsdalshátíð fór fram um liðna helgi. „Hátíðin tókst mjög vel, margt var um manninn og allir skemmtu sér konunglega,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins. Fjölbreytt dagskrá var í boði. Meðal annars var hægt að fara í göngutúr með fornleifafræðingi frá Fornleifastofnun Íslands þar sem víkingaaldarskálinn var skoðaður auk minja sem grafnir hafa verið upp á…Lesa meira

true

Gáfu Stafholtskirkju bekk

Í júnímánuði síðastliðnum afhentu þau Páll, Ásta, Margrét og Guðný Brynjólfsbörn kirkjugarðsbekk til Stafholtskirkju. Bekkinn gáfu þau til minningar um foreldra sína, séra Brynjólf Gíslason og Áslaugu Pálsdóttur. Þau Brynjólfur og Áslaug bjuggu í Stafholti árin 1969-2008 en Brynjólfur sinnti starfi sóknarprests í Stafholtsprestakalli þessi 39 ár.Lesa meira

true

Reykholtskirkja á arf í vændum

Einn helsti velgjörðarmaður Reykholtskirkju og Snorrastofu frá upphafi bygginganna undir lok síðustu aldar var norski kaupsýslumaðurinn og skipaútgerðarmaðurinn Jans Petter Røed, sem lést fyrr í sumar. Á sinni tíð efnaðist hann á skiparekstri og alþjóðaviðskiptum og var í hópi auðugustu Norðmanna. Tilviljun mun hafa ráðið því að um aldamótin heimsótti hann Reykholt og hreifst af…Lesa meira

true

Á góðri stundu í Grundarfirði hefst á morgun

Hátíðin Á góðri stundu er vinaleg fjölskylduhátíð sem hugsuð er fyrir Grundfirðinga, innfædda, aðflutta og brottflutta, vini þeirra og vandamenn og aðra gesti sem eiga leið í bæjarfélagið. Í ár verður hátíðin í þeim anda sem var árið 2019, stór þriggja daga hátíð með skreytingum og mörgum atriðum. Eins og fyrr er áhersla lögð á…Lesa meira

true

Næstu útgáfur á Skessuhorni

Skessuhorn kemur út samkvæmt venju næsta miðvikudag, 27. júlí. Eftir það fer allt starfsfólk blaðsins í viku sumarleyfi og kemur því ekki út blað miðvikudaginn 3. ágúst. Þann dag kemur hins vegar starfsfólk úr fríi og undirbýr útgáfu blaðs miðvikudaginn 10. ágúst.Lesa meira

true

Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna

Hestamannafélagið Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna um liðna helgi. Mótið var haldið að Æðarodda annað árið í röð. Keppt var í átta greinum í fjórgangi, fimmgangi, tölt- og skeiðgreinum en alls bárust 65 skráningar. Stine Laatsch, formaður mótsnefndar Dreyra, segir að flestir keppendur hafi komið af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandinu en fín þátttaka var einnig hjá Vestlendingum.…Lesa meira