Úrslit í Tölti T7. Þrír félagar frá hestamannafélaginu Dreyra voru í úrslitum. Magnús Karl Gylfason og Birting frá Birkihlíð urðu í 4. sæti, Belinda Ottósdóttir og Komma frá Akranesi í 6. sæti og Ólafur Guðmundsson og Mangó frá Viðivöllum Fremri urðu í 7. sæti. Mynd: Carolin Giese.

Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hestamannafélagið Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna um liðna helgi. Mótið var haldið að Æðarodda annað árið í röð. Keppt var í átta greinum í fjórgangi, fimmgangi, tölt- og skeiðgreinum en alls bárust 65 skráningar. Stine Laatsch, formaður mótsnefndar Dreyra, segir að flestir keppendur hafi komið af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandinu en fín þátttaka var einnig hjá Vestlendingum.\r\n\r\n,,Flestir keppendur voru skráðir frá hestamannafélögum á Suðurlandi eins og Spretti, Geysi og Sörla en það voru auðvitað nokkrir frá Dreyra og úr öðrum hestamannafélögum hér á Vesturlandi. Við vorum svo með fimm dómara sem allir komu af Suðurlandinu utan einn, hún Randi Holaker var í þeim hópi en hún er frá Skáney í Reykholtsdal. En þetta gekk allt saman mjög vel fyrir sig, það var góð stemning, slatti af fólki kom að horfa og við vorum svo með veitingasölu á staðnum. Völlurinn fékk góð ummæli og svo voru knaparnir sem voru að koma annars staðar að fegnir að mótsnefndin sá fyrir húsakosti og heyi fyrir hrossin. Þannig að þetta gekk bara rosalega vel og við erum mjög ánægð,“ segir Stine í samtali við Skessuhorn.",
  "innerBlocks": []
}
Dreyri hélt Íslandsmót áhugahestamanna - Skessuhorn