Bjartmar, Þorgeir, Rögnvaldur og fleiri sem komu fram á hátíðinni.

Vel var mætt á Ólafsdalshátíð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ólafsdalshátíð fór fram um liðna helgi. „Hátíðin tókst mjög vel, margt var um manninn og allir skemmtu sér konunglega,“ sagði Rögnvaldur Guðmundsson formaður Ólafsdalsfélagsins.\r\n\r\nFjölbreytt dagskrá var í boði. Meðal annars var hægt að fara í göngutúr með fornleifafræðingi frá Fornleifastofnun Íslands þar sem víkingaaldarskálinn var skoðaður auk minja sem grafnir hafa verið upp á staðnum. Dalurinn er ríkur af minjum sem skoða þarf betur, að sögn fornleifafræðinganna sem tóku til máls á hátíðinni. Handverks- og matarmarkaður var á staðnum sem og hátíðardagskrá sem endaði á tónleikum með Bjartmari Guðlaugssyni. Spáð hafði verið votviðri sem gekk ekki eftir svo gestir nutu dagsins í logni og blíðu. Sumaropnun er á íbúðar- og skólahúsinu í Ólafsdal til 1. ágúst þar sem opið er alla daga klukkan 12-17. Þar eru einnig til sýnis listaverk eftir bræðurna Halldór og Snorra Ásgeirssyni auk þess sem kaffisala er í gangi.",
  "innerBlocks": []
}
Vel var mætt á Ólafsdalshátíð - Skessuhorn