
Á góðri stundu árið 2006. Ljósm úr safni.
Á góðri stundu í Grundarfirði hefst á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hátíðin Á góðri stundu er vinaleg fjölskylduhátíð sem hugsuð er fyrir Grundfirðinga, innfædda, aðflutta og brottflutta, vini þeirra og vandamenn og aðra gesti sem eiga leið í bæjarfélagið. Í ár verður hátíðin í þeim anda sem var árið 2019, stór þriggja daga hátíð með skreytingum og mörgum atriðum. Eins og fyrr er áhersla lögð á að þetta sé fjölskylduhátíð og einnig sköpuð umgjörð fyrir þjónustu og veitingaaðila til að sýna gestum hversu mikið bærinn hefur upp á að bjóða og því verður mikið af viðburðum gerðir af heimafólki. Í vikunni fyrir hátíðina taka hverfin í bænum boltann og skreyta sem aldrei fyrr til að gera vel sjáanlegt að hátíðin sé að renna í garð og heyra svo á gestum hversu fallega bærinn er skreyttur.\r\n\r\nFjörið hefst á morgun, fimmtudag, með krakkaþjófstarti á Græna og seinna um kvöldið skemmta í hátíðartjaldinu Bjartmar Guðlaugs, Karlakórinn Kári, Bryndís Ásmunds, Rokkpiltarnir og Söngdívur. Á föstudaginn býður Páll Óskar ungu kynslóðinni á skemmtun í hátíðartjaldi, Kjörbúðin býður í grill, BMX Brós hjólastrákar verða á svæðinu, Íþróttaálfurinn, Brekkusöngur verður með Sylvíu Rún og leynigestum, Ungmennaball og Páll Óskar verður síðan með stórdansleik um kvöldið.\r\n\r\nÁ laugardaginn verða alls kyns uppákomur, sýningar, söngskemmtanir, sérstakar hátíðarveitingar, eldfimi, froðugaman, listsýningar, fróðleikur og erindi. Keppnin Hvaða fjölskylda eru snillingar Grundarfjarðar verður um allan bæ, skrúðganga, tónleikar og skemmtun á hátíðarsvæði, pop up gleði og skemmtun hingað og þangað eins og segir á FB síðu hátíðarinnar.\r\n\r\n„Við höfum lagt okkur fram við að skipuleggja hátíð þar sem fjölskyldan getur unnið og skemmt sér saman og að það séu atriði og skemmtun fyrir alla aldurshópa og það er trú okkar að það líti vel út. Það er alveg sama hvað við skipuleggjum og reynum að leggja okkur fram, það verður engin hátíð án þess að Grundfirðingar taki þátt og ykkar framlag er mikilvægast. Grundfirðingar taka þátt með því að skreyta hverfin og hús sín og koma á viðburði full af gleði og stolti yfir þessum einstaka bæ sem býr yfir miklum fjölda af hæfileikaríku fólki. Það er von okkar að þið takið þátt og gerið hátíðina 2022 ógleymanlega.“",
"innerBlocks": []
}