Séra Þráinn Haraldsson stýrði athöfninni þegar formlega var vígð stækkun Akraneskirkjugarðs árið 2020. Ljósm. úr safni/mm

Vilja stækka kirkjugarðinn á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi bæjarráðs Akraness 14. júlí síðastliðinn var tekið fyrir erindi forsvarsmanna Akranessóknar vegna stækkunar kirkjugarðsins í Görðum á Akranesi. Undir erindinu „Lóð fyrir nýjan kirkjugarð“ segir: „Eins og kunnugt er var kirkjugarðurinn stækkaður á síðasta áratug og nýi hlutinn tekinn í notkun haustið 2020. Jarðsetningum hefur fjölgað talsvert undanfarin ár. Núna er reiknað með að stækkun garðsins nægi til 2029-2030. Taka þarf ákvörðun um nýtt svæði með mjög góðum fyrirvara því það tekur fjögur til fimm ár að gera hluta af garðinum tilbúinn til notkunar. Forsvarsmenn Akranessóknar hafa mikinn áhuga á að fá að eiga fund, sem fyrst, með þeim sem um erindið fjalla til að skýra málið og koma skoðunum á framfæri.“\r\n\r\nBæjarráð vísaði þeim þætti erindisins er lítur að stækkun kirkjugarðsins til umfjöllunar skipulags- og umhverfisráðs.",
  "innerBlocks": []
}