{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í byrjun þessa mánaðar voru 59.105 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi og fjölgaði þeim um 4.126 frá 1. desember á liðnu ári, eða um 7,5%. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 490% frá 1. desember sl. og voru 1. júlí sl. 1.410 úkraínskir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá. Sömuleiðis hefur verið umtalsverð fjölgun ríkisborgara frá Venesúela eða um 57% og eru nú 696 einstaklingar með venesúelskt ríkisfang búsettir hér á landi. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 568 einstaklinga og um síðustu mánaðamót rufu þau 22 þúsund manna múrinn og voru 22.020 talsins eða 5,8% landsmanna og rúmenskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 407 eða um 14,8%.",
"innerBlocks": []
}
Tæplega 60 þúsund erlendir ríkisborgarar - Skessuhorn