Samira Suleman er nýr liðsmaður ÍA. Ljósm. kfia.is

Samira Suleman til ÍA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "ÍA sem leikur í 2. deild kvenna í knattspyrnu hefur borist góður liðsstyrkur fyrir komandi átök í baráttunni um að komast aftur upp í Lengjudeild kvenna. Sóknarmaðurinn Samira Suleman sem er fædd árið 1991 hefur gengið til liðs við Skagakonur frá Sindra. Samira hefur skorað sjö mörk úr átta leikjum fyrir Sindra í ár sem leikur í 2. deildinni eins og ÍA.\r\n\r\nSamira kemur frá Ghana en hún kom fyrst til Íslands árið 2015 og gekk til liðs við Víking Ólafsvík þar sem hún lék þrjú tímabil. Árin 2018 og 2019 lék hún með Aftureldingu/Fram en hefur verið í herbúðum Sindra frá árinu 2020 þar til nú. Samira hefur alls leikið 93 leiki í fyrstu og annarri deild á Íslandi og skorað í þeim 50 mörk.\r\n\r\nÍA er nú í fimmta sæti deildarinnar með tólf stig eftir sex leiki og mætir á morgun Gróttu sem er í öðru sæti með 17 stig eftir átta leiki. Leikurinn fer fram á Vivaldi vellinum á Seltjarnarnesi og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Samira Suleman til ÍA - Skessuhorn