Fréttir

true

Listamaðurinn Erró 90 ára í dag

Erró, sem heitir réttu nafni Guðmundur Guðmundsson, er fæddur í Ólafsvík 1932 og fagnar 90 ára afmæli sínu í dag. Erró er tvímælalaust einn af þekktustu samtímalistamönnum Íslendinga, var í fararbroddi evrópsku framúrstefnunnar á sjöunda áratugnum og hefur lagt sitt af mörkum til evrópskar málaralistar. Árið 1989 gaf Erró Listasafni Reykjavíkur um 2000 af verkum…Lesa meira

true

Hallbera leggur skóna á hilluna

Skagakonan Hallbera Guðný Gísladóttir hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna alfarið á hilluna. Þetta tilkynnti hún á Instagram síðu sinni en Hallbera er 35 ára gömul og var að spila á sínu þriðja stórmóti með landsliði Íslands á EM. Hallbera er fædd og uppalin á Akranesi og hóf feril sinn með ÍA áður en hún gekk…Lesa meira

true

ÍA þiggur boð um að taka þátt í fyrstu deild að nýju

Nýverið óskaði karlalið Vestra í körfuknattleik eftir því við mótanefnd KKÍ að fá að fara niður í 2. deild karla. Mótanefnd leitaði þá til ÍA, sem féll úr 1. deild karla á nýliðinni leiktíð og bauð þeim að taka sæti í deildinni að nýju, sem þeir þáðu. ÍA mun því keppa í 1. deild karla…Lesa meira

true

Skallagrímur með stórsigur á KFB

KFB og Skallagrímur áttust við í A riðli í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Álftanesi. KFB hafði unnið einn sigur í tíu leikjum í riðlinum til þessa á meðan Skallagrímur er í baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Sergio Jorda kom Skallagrími yfir eftir tæplega hálftíma leik og þannig…Lesa meira

true

Reykholtshátíð haldin um næstu helgi

Reykholtshátíð er ein elsta og virtasta tónlistarhátíð landsins og er haldin í júlí á hverju ári í Reykholti í Borgarfirði. Reykholtshátíð var stofnuð árið 1997 og telst því til elstu tónlistarhátíða landsins. Hátíðin í ár fer fram um næstu helgi, hefst föstudaginn 22. júlí og lýkur sunnudaginn 24. júlí. Erlendu gestir hátíðarinnar að þessu sinni…Lesa meira

true

Hestsbúið uppfærir tækjakostinn

Kraftvélar afhentu nýverið Hestsbúinu í Andakíl tvær vélar. Um er að ræða Pöttinger TOP 842C múgavél og Weidemann 1160E liðlétting. Vélarnar eru báðar rafknúnar. Logi Sigurðsson bústjóri á Hesti tók við vélunum ásamt Eyjólfi Kristni Örnólfssyni sérfræðingi við LbhÍ og Ástrósu Ýr Eggertsdóttur sem sinnir afleysingastörfum á Hesti. Vélarnar eru komnar í notkun og láta…Lesa meira

true

Keppnin um sterkustu konu Íslands

Keppnin um sterkustu konu Íslands fór fram á Akureyri síðastliðinn laugardag. Sex keppendur voru mættir til leiks, þeirra á meðal Ellen Lind Ísaksdóttir sem hefur unnið titilinn seinustu þrjú ár og Ragnheiður Ósk Jónasdóttir sem hefur verið í öðru sæti þessi þrjú ár síðan hún sjálf vann titilinn 2019. Hörðust varð keppnin þeirra á milli…Lesa meira

true

Litrík Þjóðahátíð á Akranesi

Í gær var Þjóðahátíð Vesturlands haldin á veitingastaðnum Nítjándu í Garðavöllum á Akranesi. Hátíðin hefur verið haldin reglulega, með covidhléi, undanfarin 16 ár. Markmiðið með hátíðinni er að sýna fjölbreytileika ólíkra þjóða og draga úr kynþáttafordómum með því að kynna fyrir Íslendingum mismunandi menningu með tónlist, mat og dansi. Hátíðin var sem fyrr haldin af…Lesa meira

true

Tafir og lokanir við götur á Akranesi

Í dag hófu verktakarnir Emkan ehf. störf við viðhald gatna á Akranesi. Einhverjar tafir og lokanir geta orðið á meðan á vinnu stendur. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að þær götur sem verður gert við eru Asparskógar, Garðabraut, Garðagrund, Jörundarholt, Ketilsflöt, Stillholt og Ægisbraut. Nánari lýsingu á hverjum verkþætti má sjá á vef bæjarins.Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík með góðan sigur á Ægi

Víkingur tók á móti liði Ægis á Ólafsvíkurvelli í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og vann öruggan sigur 5-2. Fyrsta mark leiksins kom þó ekki fyrr en á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Mikael Hrafn Helgason kom heimamönnum yfir og staðan í hálfleik 1-0 fyrir Víking. Það var aðeins meira fjör í seinni hálfleik…Lesa meira